Fara í efni

HAMINGJA Á VINNUSTÖÐUM ER ALVÖRUMÁL!

HAMINGJA Á VINNUSTÖÐUM ER ALVÖRUMÁL!

VIRK, Embætti landlæknis og Vinnueftirlitið standa fyrir morgunfundi á Grand Hótel 21. febrúar um mikilvægi þess að auka vellíðan á vinnustöðum. 

Aðalfyrirlesari á morgunfundinum er Vanessa King, þekktur fyrirlesari og sérfræðingur um vellíðan, þrautseigju og hamingju á vinnustöðum, en Vanessa er hér á landi að kenna í Jákvæðri sálfræði við Endurmenntun Háskóla Íslands.

Auk Vanessu þá ávarpar Alma D. Möller landlæknir morgunfundinn, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir reifar rannsóknir sínar á hamingju vinnandi fólks á Íslandi og Ingibjörg Loftsdóttir kynnir Velvirk verkefnið.

Dagskrá
Ávarp
Alma D. Möller, landlæknir
The serious business of happiness at work 
Vanessa King, Action for Happiness
Hamingja vinnandi fólks á Íslandi 
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis 
Er brjálað að gera?
Ingibjörg Loftsdóttir, sviðsstjóri hjá VIRK

Fundarstjóri: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands

Morgunfundurinn verður haldinn á Grand Hótel 21. febrúar kl. 8.30 -10.00.

Aðgangur er ókeypis en skrá skal þátttöku á virk.is.