Fara í efni

Sumarsalat með jarðarberjadressingu

Mér finnst salöt algjörlega ómissandi á sumrin, bæði er svo margt í uppskeru á þessari árstíð sem er gott að setja í salöt og svo eru þau einstaklega fljótleg sem hentar vel þegar maður vill eyða sem minnstum tíma í eldhúsinu og sem mestum úti í sól og blíðu.
Sumarsalat með jarðarberjadressingu

Mér finnst salöt algjörlega ómissandi á sumrin, bæði er svo margt í uppskeru á þessari árstíð sem er gott að setja í salöt og svo eru þau einstaklega fljótleg sem hentar vel þegar maður vill eyða sem minnstum tíma í eldhúsinu og sem mestum úti í sól og blíðu.

Hér kemur eitt af mínum uppáhalds salötum, með jarðaberjadressingu.. namminamm!  Ég mæli með að gera tvöfaldan skammt því dressingin er syndsamlega góð. 

Dressingin er..

  • fljótleg
  • úr fimm hráefnum
  • sæt en þó passleg með mat

Salatið hentar með grilluðu grænmeti eða hvaða grillmat sem er og er tilvalið í næsta matarboð. Auðvitað er salatið betra með íslenskum hráefnum, svo leitið endilega eftir að kaupa slíkt.

Steinseljan er fæða sem hefur sérstaka hreinsunareiginleika, vinnur á bólgum og er góð fyrir húðina.

Sumarsalat með jarðarberjadressingu

Salatið
2 handfylli spínat eða grænt salat
1 rauðlaukur
veglegt handfylli af íslenskum jarðarberjum
2 smáar gúrkur
fersk steinselja
nokkrar valhnetur, muldar

Jarðaberjadressing
1 bolli íslensk jarðaber
1 límóna, kreist
1/4 bolli ólífuolía
1 tsk kókospálmanektar (t.d frá Biona) eða notið hlynsíróp/hunang
1⁄2 tsk salt

  1. Setjið öll hráefni í jarðaberjadressingu í blandara og vinnið örlítið, dressingin er best þegar hún er pínu kekkjótt. Smakkið til með salti eða sætugjafa eftir smekk.
  1. Skerið rauðlauk, gúrku og jarðaber og setjið í skál ásamt salatblöðum. Veltið uppúr helmingnum af dressingunni og skreytið með steinselju og valhnetum. Berið fram með afgangs dressingu og njótið. Algjör sumarsæla.

Ef þig vantar meiri innblástur fyrir sumarið þá eru hér tvö salöt í viðbót. Bæði einföld, fljótleg og henta vel í sumar.

Endilega deilið svo á samfélagsmiðlum og taggið mig á Instagram! Ég elska að heyra frá ykkur.

Heilsa og hamingja,