Fara í efni

Sumarlegt salat, kálgarður með rauðkálsbreiðu og avocadohól

Hamingja í hverjum bita.
Fallegt og sumarlegt salat
Fallegt og sumarlegt salat

Í þessu sumarlega salati er hamingja í hverjum bita.

 

Kálgarður:

Grænt salat, 
Seinselja

Rauðkálsbreiða:

Gul paprika, skorin í litla bita
Gúrka, skorin í litla bita
Rauðkál, skorið smátt

Avocadohóll:

Avocado, skorið í bita
Safi út lime
Hunang

Búið til kálgarðshring út salati. Skreytið garðinn með steinselju.

Blandið saman papriku, gúrku og rauðkáli og setjið 1 – 2 tsk af hunangi saman við.

Breiðið úr rauðkálsblöndunni í miðjuna á kálgarðinum.

Skerið avocado og kreystið lime yfir. Marinerið í stutta stund. Raðið avocado í hól í miðjuna á kálgarðinum. Skreytið með steinselju.

Allt er vænt sem vel er grænt.

Anna Bogga Food & Good er æðisleg síða á Facebook - kíkið við