Fara í efni

Streita og magnesíum

Streita og magnesíum

Færð þú oft sykurlöngun þegar það er streitutímabil hjá þér?

Um daginn sendi vinkona mín mér þessa spurningu á Facebook: “Júlía, Ég gekk eins og í leiðslu áðan beint inní Bónus og keypti Síríus súkkulaði. Núna er brjálað að gera og ég sæki alltof mikið í sykurinn. Hvað á ég að gera?”

Mér fannst þetta svo góð spurning og ég heyri hana ótrúlega oft. Því datt mér í hug að deila með þér hvernig við tækluðum sykurlöngun hennar og færðu að vita lykilvítamínið sem við þurfum að passa uppá í streitutímabilum!

Er þetta eitthvað sem hefur hjálpað mér og vinkonu minni að átta okkur betur á hversu mikið magnesíum við þurfum að taka, en það er einmitt lykilvítamínið sem við þörfnumst á álagstímabili.

DSC_2640

Magnesíum

Magnesíum hjálpar við sendingu taugaboða og slökun vöðva. Við þurfum magnesíum til að sinna taugaboðum frá vöðvunum til heilans og einnig er magnesíum  nauðsynlegt fyrir upptöku kalks. Magnesíum ásamt kalki hjálpar við vöðvaslökun sem aðstoðar m.a. við æðavíkkun og lækkun á blóðþrýstingi.

Magnesíum hefur meira að segja verið kallað hin náttúrulega “chill pill” en það getur dregið verulega úr streituhormónum. Þegar líkaminn er undir streituálagi, þá framleiðir hann streituhormón og dregur þetta úr magnesíumforða líkamans.

Því er það oft þannig að þegar við erum undir mikilli streitu krefst líkaminn meira magns af magnesíum en vanalega og því gott að taka inn magnesíum á streitutímabili.

Þegar líkamann skortir magnesíum er mjög algengt að við sækjum í sykur enda súkkulaði sérlega magnesíumrík fæða.

DSC_2682 2

Magnesíum jafnar blóðsykurinn og hjálpar líkamanum að vinna úr frútkósa (sem finnst í sykri). Svo ef kemur til þess að þú fáir þér fæðutegund sem hefur hátt hlutfall af frúktósa eða sykri, eru minni líkur á því að þú fáir “sykursjokk”, ef líkami þinn hefur nóg af magnesíumforða.

Magnesíum er einnig mikilvægt fyrir þá sem æfa mikið þar sem það getur hjálpað líkamanum að jafna sig eftir æfingar.

Einkenni þess að þú gætir gætir þurft að taka inn magnesíum eða þurft meira eru m.a, stirðir vöðvar,  krampar í vöðvum, óróleiki, kvíði, streita, erfiðleiki með að afslöppun, orkuleysi og þreyta.

Við erum öll mismunadi og sumir þurfa meira en aðrir. Ef þú ert undir mikilli streitu, æfir mikið eða sækir gjarnan í sykur gæti kallar líkaminn yfirleitt meira magnesíums.

Ég og vinkona mín komumst að því að á streitutímabilum gæti hún þurft að bæta við örlítið meira af magnesíum en staðlaði dagskammturinn segir til um og tók hún þá í bæði töflu og vökva formi þar til hún fann betra jafnvægi.

DSC_2625
Hvernig á að taka inn magnesíum

Hægt er að taka inn magnesí­um í duft- eða töflu­formi.  Hlustaðu á líkamann og ráðfærðu þig við lækni ef þú íhugar að bæta við staðlaða dagskammtinn.

Magnesíumríkar fæðutegundir:

  • dökkt kakó og kakónibbur
  • döðlur
  • gráfíkjur
  • kasjúhnetur
  • klettasalat
  • avókadó
  • sesamfræ og tahini (sesammauk)
  • bananar
  • alfalfa spírur

Ég vona að greinin hjálpi þér að tækla sykurlöngunina undir streitu!

Þar sem magnesíumskortur leiðir til sykurlöngunar, mæli ég með því að þú skoðir ókeypis fyrirlesturinn minn á netinu -“3 einföld skref sem halda sykurlöngun burt, brenna fitu náttúrulega og tvöfalda orkuna!” til að vinna enn beturá sykurlöngun!

Smelltu hér til að skrá þig á ókeypis net-fyrirlesturinn.

Með því að skrá þig færðu einnig..

  • 3 skrefa formúlu mína til að losna við sykurlöngun...án þess að mega aldrei aftur borða nammi
  • Hvaða sætugjafa á að nota og hverja EKKI
  • Algengustu mistökin í breyttum lífsstíl sem geta leitt okkur í fitugildru
  • 5 orkuríkar fæðutegundir sem slá á sykurlöngun nær samstundis mínum sem er skotheld vörn gegn sykurlöngun
  • Uppskrift af drykk sem er skotheldur gegn sykurlöngun

Er sykurlöngunin að fara með þig_ (3)

Ef þér líkaði greinin væri ég afar þakklát ef þú deildir henni yfir á Facebook, sérstaklega ef þú átt vinkonu sem glímir við sykurlöngun vegna streitu!

Heilsa og hamingja,
jmsignature