Fara í efni

Konur, ber og hjartasjúkdómar

Ýmsar rannsóknir benda til þess að áhættuþættir hjarta-og æðasjúkdóma séu ekki alveg þeir sömu hjá körlum og konum.
Konur ættu að borða meira af bláberjum
Konur ættu að borða meira af bláberjum

Ýmsar rannsóknir benda til þess að áhættuþættir hjarta-og æðasjúkdóma séu ekki alveg þeir sömu hjá körlum og konum.

Áhættuþættir kransæðasjúkdóms hafa löngum verið óljósari meðal kvenna en karla. Ekki síst á þetta við þegar kemur að mataræði.Nýleg rannsókn á 93.600 konum sem birt var í dag í hinu virta bandaríska læknatímariti Circulation kann að hafa varpað einhverju ljósi á þessi mál. Þó er það oft eðli vísindarannsókna að þær vekja upp fleiri spurningar en þær svara.

Vísindamenn við Harvard háskólann í Boston fylgdu konunum sem voru á aldrinum 25-42 ára eftir í 18 ár. Konurnar svöruðu spurningalista um mataræði á 4 ára fresti. Alls fengu 405 þessarra kvenna hjartaáfall (kransæðastíflu) á tímabilinu. Tíðni þessarra áfalla var 32 prósent lægri meðal kvenna sem borðuðu mikið af efnum sem kallast anthocyanin. Þessi efni er að finna í ríkulegu magni í bláberjum og jarðarberjum. Anthocyanin má einnig finna í eggaldin, greip, lárperum, mangó, ólífum, rauðlauk og sætum kartöflu . 

Talið er að anthocyanin geti víkkað út slagæðar og dregið úr þrengslamyndun í æðum. Eldri rannsóknir hafa sýnt að neysla bláberja getur dregið úr líkum á háum blóðþrýstingi

Þessi rannsókn, eins og fjölmargar aðrar sem sýna tengsl á milli mataræðis sjúkdóma, sannar ekki að orsakasamband sé til staðar. Hugsanlegt er að konurnar sem borðuðu mikið af berjum hafi hreinlega haft almennt heilbrigðari lífsstíl en hinar.

Vísindamennirnir benda þó á að fæða sem inniheldur anthocyanin sé líklega mikilvægur þáttur í hollu mataræði, sem helst eigi að innihalda mikið magn af ávöxtum, grænmeti og heilkorni. 

Grein fengin af síðu mataraedi.is