Fara í efni

Glúten- og hveitlausar vatnsdeigsbollur

Bolludagurinn er á næsta leiti.
Glúten- og hveitlausar vatnsdeigsbollur

Nú styttist í bolludaginn og hér er uppskrift að glúten- og hveitislausum vatnsdeigsbollum sem hafa slegið vel í gegn á mínu heimili.

 

Hráefni: 

125 g smjör

250 ml vatn

40 g kókoshveiti

3 stór egg

1 tsk. xhantan gum

Leiðbeiningar:

Smjör og vatn sett í pott og brætt. Kókoshveiti bætt í pottinn og hrært vel saman. Xhantan gum bætt út í og blandað við. Sett í skál og látið kólna. Eggjum bætt við, eitt í einu og hrærð vel saman við deigið. 

Nota skeið til að setja deig á bökunarplötu með bökunarpappír á. Bakað með blæstri á 180 gráðum í um 30-35 mínútur. Baksturstíminn fer eftir stærðinni á bollunum.

Þær gætu verið smá blautar að innan. Mér finnst það gott en það er vel hægt að skafa aðeins úr þeim.

Ég bræði sykurlaust súkkulaði og set ofan á bollurnar.

Á milli var ég með þeyttan rjóma með vanillufræjum í. Ef maður vill hafa rjómann aðeins sætan er hægt að setja smá Sukrin Melis með vanillunni en mér finnst rjómabragðið alltaf fullkomið eins og það er.

Uppkrift af vef gottimatinn.is