Fara í efni

Beikon og sætkartöflubitar – það má stundum smá beikon

Þessir bitar eru víst algjört sælgæti segja þeir sem þekkja til. Hollusta fyrir alla fjölskylduna þó það sé aðeins af beikoni í uppskriftinni.
Beikon og sætkartöflubitar – það má stundum smá beikon

Þessir bitar eru víst algjört sælgæti segja þeir sem þekkja til.

Hollusta fyrir alla fjölskylduna þó það sé aðeins af beikoni í uppskriftinni.

Þetta er gott í nestið og nartið, eitt og sér með fersku salati eða sem meðlæti.  

Uppskrift er fyrir 8.

Hráefni:

Ein stór skeið-ausa af sætri kartöflu, soðin og án hýðis

1 kúrbítur

4 beikon sneiðar

1 laukur – notaðu þinn uppáhalds

4 egg

1 bolli af hveiti

1 tsk af lyftidufti

1 bolli af osti

1 msk af hvítlauk – saxa hann smátt

1 msk af graslauk

½ tsk af sjávar salti

1 tsk af pipar

Leiðbeiningar:

Forhitið ofninn í 220 gráður.

Blandið öllum hráefnunum saman í skál og passið að blanda þessu öllu afar vel saman.

Hellið svo í eldfastmót eða mót sem deig festist ekki við.

Bakið á 220 gráður í 40-50 mínútur (200 gráður í blástursofni).

Berið fram með fersku salati t.d sem hádegisverð eða hafið sem meðlæti með kjöti eða steik.

Hér má horfa á kennslumyndband.

Njótið vel!