Fara í efni

Banana mjólk – vegan og án mjólkurafurða

Alveg snilldar drykkur og einnig til að nota út á hafragrautinn.
Banana mjólk – vegan og án mjólkurafurða

Bananamjólk er alveg ljómandi góð, laus við hnetur og mjólkurafurðir.

Það eru aðeins tvö hráefni í bananamjólk og er afar einfalt að hræra í hana heima. Allt sem þarf eru bananar, vatn og blandari.

Þegar kemur að drykk sem inniheldur ekkert af mjólkurafurðum þá eru ansi oft hnetur í þeim, eins og hinni afar vinsælu möndlumjólk og mjólk sem unnin er úr kasjú hnetum.

Hvað á þá sá sem er með hnetuofnæmi að gera?

Ok, það eru þá kókósmjólk, hörfræmjólk eða haframjólk. Og auðvitað sojamjólkin.

Bananamjólkin er enn einn afar góður kostur sem nota má á morgunkornið, í hafragrautinn eða skella beint í glas og drekka.

Hún er ódýr og fljótleg að gera.

Bananamjólkin er einnig stútfull af kalíum og öðrum afar góðum næringarefnum.

Ef þú hefur aldrei búið til bananamjólk áður þá eru hér nokkur góð ráð:

Skerðu banana niður í bita og frystu þá áður en þú notar þá.

Notaðu kraftmikinn blandara.

Ef þú átt ekki frosna banana, notaðu þá ½ bolla af vatni og ½ bolla af ísmolum.

Bananamjólk geymist ekki, hún skilur sig mjög fljótlega eftir að hún hefur verið búin til. Ekki hræra í bananamjólk nema rétt áður en þú ætlar að nota hana. 

Gott er að nota þroskaða banana fyrir sæta bragðið.

Einnig má nota Hlynsýróp, kanil, hörfræ, vanillu extract eða 1-2 döðlur saman við.

Þú notar 1 frosinn banana, 1 glas af vatni og skellir á kraftmikinn hræring í blandaranum þínum.

Mjög einfalt að margfalda þessa uppskrift ef fleiri á heimilinu vilja bananamjólk á sinn morgunverð eða ef þú ætlar að nota hana til að baka amerískar pönnukökur eða þykkar vöfflur.

Njótið vel!