Fara í efni

Einfaldar og fljótlegar grænkálsvefjur sem þú munt elska!

Ég verð að deila uppskriftinni af þessum grænkálsvefjum með þér! Einfalt, hreint og fljólegt er það sem ég elska í matargerð. Þetta eru eflaust fljótlegustu og bragðbestu grænkálsvefjur sem ég hef gert, enda hef ég gert þær óteljandi oft. Þær taka innan við tvær mínútur að setja saman og gefa þér góða fyllingu sem endist fram eftir degi. Það sem er enn betra er þær hjálpa til við að slá á sykurþörfina og jafna blóðsykur.
Einfaldar og fljótlegar grænkálsvefjur sem þú munt elska!

Ég verð að deila uppskriftinni af þessum grænkálsvefjum með þér!

Einfalt, hreint og fljólegt er það sem ég elska í matargerð.

Þetta  eru eflaust fljótlegustu og bragðbestu grænkálsvefjur sem ég hef gert, enda hef ég gert þær óteljandi oft. Þær taka innan við tvær mínútur að setja saman og gefa þér góða fyllingu sem endist fram eftir degi.

Það sem er enn betra er þær hjálpa til við að slá á sykurþörfina og jafna blóðsykur.

Grænkál

Ég borða oftast grænkál á hverju degi enda er það næringarríkast af öllu grænu grænmetinu. Það hefur til dæmis tíu sinnum meira næringargildi en iceberg kál. (Þið getið lesið meira um það hér og  hér ) Grænkál mætti því kalla algjöra ofurfæðu, enda er það ríkt af kalki, magnesíum, andoxunarefnum, trefjum (sem bæta meltingu) ásamt B6 og járni.

Grænkál er einnig talin ein besta uppspretta K vítamíns (sem gegnir stóru hlutverki í storknun blóðs), er sérlega próteinríkt og á sama tíma lágt í kolvetnum sem gerir það góða hollustu enn betri. Allt grænt grænmeti þykir mér létta lund og ég finn að mér líður vel af því að innan sem utan. Svo grænkálið geymist lengur nota ég gott ráð hér sem má sjá hér.

Tahini

Tahinidressingin mín sem ég nota á vefjurnar hefur notið mikilla vinsælda hjá þeim sem fylgjast með mér á Snapchat (lifdutilfulls) enda er engin ástæða að spara hana. Ef þú þú hefur ekki notað tahini áður þá er það smjör úr maukuðum sesamfræjum sem fæst í flestum matvöruverslunum nú orðið og bragðast dásamlega. Tahini er ríkt af magnesíum og góðri fitu lykilvítamín sem hjálpar að slá á sykurlöngun.

Vefjur:

2-4 grænkálsblöð (fer eftir stærð)

1/2 gúrka

1/2 bolli rauðkál

Lífrænt epli

Fersk mynta

Sítróna til að kreista yfir

Tahinidressing:

1 msk tahini

1-2 msk eplaedik

1-2 msk sítrónusafi

  1. Hrærið saman í dressinguna og setjið til hliðar.
  2. Raðið grænkálsblöðum á disk. Reynið að velja stór grænkálsblöð í vefjurnar þar sem þær verða auðveldari að borða. Yfirleitt finn ég stór og falleg blöð í búðinni en ef þú átt leið hjá bændamarkaði er það upplagt.
  3. Skerið grænmetið og eplin smátt. Smyrjið tahini dressingu í grænkálsblöðin og dreifið grænmeti yfir. Kreistið sítrónusafa yfir herlegheitin svo auðveldara sé að tyggja grænkálið og það fari betur í meltinguna og stráið svo ferskri myntu að lokum.Njótið með vinum!

Eplin og myntan gera salatið virkilega ferskt og sætt.  Mér finnst æðislegt að bæta við kjúklingaspírum eða hemp fræjum fyrir auka prótein.

IMG_1512

Fleiri uppskriftir væntanlegar!

Vissir þú að það styttist í Sykurlausa áskorun! Það kostar ekkert að taka þátt í 14 daga áskoruninni og þú færð nýjar uppskriftir sem slá á sykurlöngunina. Smelltu hér til að skrá þig og þá færð þú tilkynningu þegar hún hefst í ágúst! 

Heilsa og hamingja,

Júlía heilsumarkþjálfi