Fara í efni

Blómkáls tortillur

Snildar tortillur og auðvelt að græja.
Blómkáls tortillur.
Blómkáls tortillur.

Hádegið.

Tortillur.

Blómkáls"tortillur"
Algjör snild
Skítlétt að búa til og svo er bara velja sitt meðlæti
Þetta er bara snild og sjúklega gott

Uppskrift:

Einn blómkálshaus millistærð og búa til blómkálsgrjón.
2 stór egg
1/4 bolli saxað ferskt kóríander
safi úr 1/2 lime (um 2 msk)
1/2 tsk Maldon salt

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 190 celsius

2. Þetta ætti að verða um tveir bollar af blómkálsgrjónum ...rúmlega.

3. Setja grjónin í þurra grisju eftir að hafa kólnað.
Eða í sýju net (fæst í Ljósinu) og ná hverjum einasta dropa af vatni úr.
Mjög mikilvægt að allt vatn sé farið úr.

4. Í skál, blanda blómkálsgrjónum, egg, kórander, salt, pipar og salti... eins er æði að nota Heita pizza kryddið frá Pottagöldrum.
Blandið þessu vel saman.
Móta síðan um sex litlar  hringlaga tortillur á bökunarpappír.

5. Bakið í 10 mínútur þá snúa tortilla kökunum við , og aftur í ofninn í til viðbótar 5 til 7 mínútur, eða þar til alveg bakað.
Alls ekki bakað nema rétt gyllt...ekki hafa dökkar kökur.

Svo er bara að græja sínar tortilla kökur. Og meðlætið getur verið hvað sem er.
Ég var með á mínum stappað avacado, rauðlauk, kál, papriku, yddaða gúrku, yddaða gulrót, tómar, kjúkling og rifin ost.
Smá salt og pipar yfir .

Algjör snild og fínt að eiga í nesti.