Fara í efni

Lax er svo mikill eðal matur.

Hræra öllu vel saman og pensla yfir fiskinn. Síðan skera smá sítrónu yfir líka .
Ofnbakaður Lax með grænmeti.
Ofnbakaður Lax með grænmeti.

Kvöldmaturinn.

Lax og aftur Lax.....þetta klikkar ekki :)

Lax úr Hafið Fiskverslun besti fiskurinn og þjónustan einstök .
Ég keyri langa leið eftir fiskinum frá þeim.
svo hrifin líka af góðri þjónustu...brosandi afgreiðslufólki ;)
Og ég hef enga hagsmuni að gæta við þessa búð samt .....bara svo ánægð með þessa búð :)

Ég bý til kryddlög í skál.

saxa niður Kórander ( vel lófafyllir)
saxa niður Steinselju ( vel lófafyllir)
Kreista 1/2 sítrónu yfir
1 tsk. olivu oliu
Engifer rifin eftir smekk
Chilli rifin eftir smekk
chillisalt-Birki reykta saltið frá saltverk- pipar

Hræra öllu vel saman og pensla yfir fiskinn.
Síðan skera smá sítrónu yfir líka .
Ég vil Lax mjög lítið eldaðan.....en það er svo misjafnt hvað fólki finnst um eldun á fiski.
Svo minn er hafður bara rétt í 15min í vel heitum ofni.

Svo er það bara ofnbakað grænmeti og sætar kartöflur með .
Þetta er algjört æði...og þrusu hollt :)
Laxinn sjálfur er svo safaríkur og lögurinn svo góður að maður þarf ekki sósu með þessum rétt frekar en maður vill .