Fara í efni

Snildar ráð í nesti og súpugerð.

Þetta er svo gott í nesti og til að eiga tilbúið grænmeti. Ef þetta fer að slappast....þá skella í pott. Bæta Hvítlauk-Engifer-chilli og grænmetiskrafti.
Elda nóg og eiga í nesti.
Elda nóg og eiga í nesti.

Þetta er svo mikið snildaráð :)

Skera niður helling af grænmeti í eldfast mót.
Ég var með í þetta sinn.

Eggaldin
Kúrbít
Rauðlauk
Gulrætur
Rauða papriku
Sætar kartöflur
Sveppi
Tómata

Chilli salt og pipar.
Slettu af olívu olíu og inn í ofn.
Elda eftir smekk :)
Ég vil ekki mjög maukað grænmeti.

Þetta er svo gott í nesti og til að eiga tilbúið grænmeti.
Ef þetta fer að slappast....þá skella í pott.
Bæta Hvítlauk-Engifer-chilli og grænmetiskrafti.
Töfrasprotann á allt saman eða blandara 
Bæta við vatni og sjóða upp í súpu.
Þá ertu komin með súper súpu ....og fínt í nesti 

Það er svo gott að vera smá undirbúin.
Því hver hefur tíma í að standa í stússi á hverjum degi :)