Fara í efni

Gómsætar hveiti, glútein og mjólkurlausar brúnkur - því ekki að baka þessa fyrir helgina

Það er stundum svo gott að eiga góða köku ef gesti ber óvænt að garði.
Gómsætar hveiti, glútein og mjólkurlausar brúnkur - því ekki að baka þessa fyrir helgina

Það er stundum svo gott að eiga góða köku ef gesti ber óvænt að garði.

Þessar brúnkur eru fyrir alla, hveiti, glútein og mjólkurlausar.

Þær eru góðar með kaffinu og einnig ef þig langar í hollan eftirrétt.

Hráefni:

4 stór egg

1 bolli af ósætu kakó dufti (cocoa)

1 bolli af kókóshnetusykri (coconut palm sugar)

¼ bolli + 1 msk af kókósolíu

2 tsk af vanilla extract

1/8 tsk af salti

Leiðbeiningar:

Forhitið ofninn í 180 gráður.

Blandið hráefnið í skál þar til það er flauelsmjúkt.

Hellið í fat sem þolir bakstur í ofni og hyljið botninn með smjörpappír.

Látið bakast í 25-30 mínútur.

Notið prjón til að vera viss um að brúnkurnar séu bakaðar í gegn. Þegar kakan er tilbúin þá á hún að vera mjúk í miðjunni og hristast örlítið í forminu. Minnir örlítið á hlaup.

Takið úr ofni og látið kólna í a.m.k 5 klukkutíma áður en kakan er skorin í ferkantaða bita

Til að flýta fyrir þá má kæla í ísskáp.

Ps: það er einnig mjög gott að nota Maple síróp í stað kókóssykurs.

Njótið vel!