Fara í efni

Uppskrift – banana - kanil drykkur sem er ofsalega góður til að drekka fyrir svefn

Við höfum öll heyrt þetta svo átatugum skiptir: Svefn er afar mikilvægur fyrir okkur öll.
Uppskrift – banana - kanil drykkur sem er ofsalega góður til að drekka fyrir svefn

Við höfum öll heyrt þetta svo átatugum skiptir: Svefn er afar mikilvægur fyrir okkur öll.

Ertu að fá nægan svefn?

 

 

 

 

 

 

 

Hér á eftir eru helstu einkennin ef þú þjáist af svefnleysi:

Minnisleysi

Þunglyndi og kvíði

Þreyta á morgnana

Þú vaknar mjög snemma

Átt erfitt með að einbeita þér

Að fá nægan svefn er það besta fyrir heilsuna og hér eru nokkur atriði:

Svefn bætir ónæmiskerfið

Svefn bætir geðheilsuna og einbeitingu

Svefn eykur kynorkuna og frjósemi

Svefn bætir skapið

Áður en þú grípur til svefnlyfja þá skaltu prufa þessa uppskrift hér að neðan.

Hráefnin eru einföld og þú átt þau eflaust til heima og það tekur bara nokkrar mínútur að gera þennan drykk.

Hráefni:

1 banani

Dass af kanil

Lítill pottur af vatni

Leiðbeiningar:

Skerðu endana af banananum og settu hann í sjóðandi vatnið. Láttu sjóða í 10 mínútur. Helltu svo vatninu í gegnum sigti í bolla.

Bættu kanil saman við, þú notar það magn sem hentar þér.

Þennan drykk ættu allir sem þjást af svefnleysi að drekka fyrir svefn.

Heimild: collective-evolution.com