Fara í efni

H O L L U S T A: DÍSÆTIR og ÍÐILGRÆNIR tröllahafrar með ferskum ÁVÖXTUM

Dásamlegir, heilnæmir og spínatbættir hafrar sem eru sneisafullir af bætiefnum er einmitt það sem líkaminn þarfnast í upphafi nýrrar viku. Að ekki sé minnst á ef ávöxtum, hnetusmjöri og kókosmjöli er bætt út í blönduna! Hljómar dásamlega, ekki satt?
H O L L U S T A: DÍSÆTIR og ÍÐILGRÆNIR tröllahafrar með ferskum ÁVÖXTUM

Dásamlegir, heilnæmir og spínatbættir hafrar sem eru sneisafullir af bætiefnum er einmitt það sem líkaminn þarfnast í upphafi nýrrar viku.

Að ekki sé minnst á ef ávöxtum, hnetusmjöri og kókosmjöli er bætt út í blönduna! Hljómar dásamlega, ekki satt?

 

 

 

 

Uppskriftin er einföld, framreiðslutíminn spannar aðeins 5 mínútur að morgni og orkan endist þér langt fram eftir degi! Að vísu fara hafrarnir inn í kæli að kvöldi dags, en því auðveldara er að grípa þá í upphafi dags og hlaða líkamann af bætefnum.

UPPSKRIFT:

Hnefafylli af fersku spínati eða grænkáli

1 stór og vel þroskaður banani

1 ½ msk chiafræ

1 bolli möndlumjólk

⅓ bolli haframjöl (glútenlaust)

L E I Ð B E I N I N G A R:

#1

Setjið spínatlaufin, bananann, chiafræin og möndlumjólkina í blandara og hrærið saman þar til blandan er orðin þykk og mjúk.

#2

Setjið nú haframjölið í morgunverðarskál / ágætt ílát með loki og hellið blöndunni ofan á haframjölið. Hrærið vel saman, lokið ílátinu vel eða hyljið með filmu og látið standa í kæli yfir nótt.

#3

Takið fram að morgni til, hrærið vel í blöndunni og njótið vel. Ljómandi góð hugmynd er að bragðbæta blönduna með matskeið af hnetusmjöri, múslíkurli, kókosmjöli og niðurskornum, ferskum ávöxtum.

N J Ó T I Ð!

Uppskrift frá sykur.is