Fara í efni

Geggjaður drykkur – grænt te, bláber og banani

Mjög svo morgunverðarlegur þessi.
Geggjaður drykkur – grænt te, bláber og banani

Mjög svo morgunverðarlegur þessi.

Ef þig langar í andoxunarefni þá skaltu skella í einn svona og hella honum í þig fyrir hádegi.

Uppskrift er fyrir einn drykk.

 

 

 

 

 

 

 

 

Hráefni:

3 msk af vatni

1 poki af grænu te

2 tsk af hunangi

1 ½ bolli af frosnum bláberjum

½ banani

¾ af vanillu mjólk eða mjólk að eigin vali

Leiðbeiningar:

Hitið vatn þar til það er við suðumark, má gera í örbylgjunni. Setjið tepokann í vatnið og látið liggja í 3 mínútur. Fjarlægjið tepoka. Hrærið hunangi saman við.

Blandið berjum, banana og mjólkinni í blandarann og látið blandast vel. Bætið nú teinu saman við og hrærið vel saman á mesta hraða.

Hellið svo í glas og njótið!

 

Fyrir þá sem vilja vita:

NUTRITION (per serving) 269 cals, 2.5 g fat, 0.2 g sat fat, 52 mg sodium, 63 g carbs, 38.5 g sugars, 8 g fiber, 3.5 g protein