Fara í efni

Páskadags morgun og páskaegg í boði.

Ætlaði ég að fá mér páskaegg í ár? Ég sem hef yfirleitt verið í megrun alla páska síðastliðin 20 ár Horft upp á þá sem fengu egg og slefað.
Gleðilega páska.
Gleðilega páska.

Góðan daginn.

Gleðilega páska kæru vinir :)

Hér á bæ var vaknað snemma eins og alla aðra daga.
Plútó voffi sér til þess að aldrei er sofið út .
En Páskadagur er líka pínu spes dagur .
Minn litli var spentur yfir súkkulaði eggjunum en ekki var mamman minna spent .
Enda búin að fara í gegnum rússibana með því að horfa upp á páska eggið sitt sem beið og dokaði dögum saman fyrir framan mig 24/7 .

Ætlaði ég að fá mér páskaegg í ár?
Ég sem hef yfirleitt verið í megrun alla páska síðastliðin 20 ár 
Horft upp á þá sem fengu egg og slefað.
Dottið ofan í afganga hrúgað í mig og brotið niður fyrir aumingja skapin að fá mér páskaegg sem ekki boði var.
Ok ....eftir fréttir síðastliðina daga um heil baðkör af grænmeti í staðin fyrir páskaeggið mitt humm nei takk 
Síðan las ég að maður þarf að hlaupa hringinn í kringum landið til að ná af sér egginu eftir átið þann daginn!!

Svo hvað er til ráða???
Hvað á maður að gera í þessu .

Ég tók þá ákvörðun að Rís eggið sem maðurinn minn kom með heim handa mér væri mitt :)
Ég var sem titrandi lauf við að opna herleg heitin eldsnemma í morgun.
Fékk mér góðan morgunmat .
Hitaði svo einn extra kaffibolla ....opnaði eggið og braut í klessu.
Allt troðfullt af nammi.
Það reyndar freistar mín lítið.
En súkkulaðið sjálft var himneskt.
Og naut ég nokkura bita all skuggalega :)
þvílík alsæla.
En svo bara varð mér flökurt hehehhehe
Langaði ekki í meira .

En bara þetta að taka ákvörðun og njóta.
Ekki banna og hegna.
Ég er almennt ekki með sykuráti....því ég tel hvítan sykur sem eitur fyrir mig.
En allt er bestast í hófi.
Og þetta Páskaegg var rússibani alla leið.
Sit núna með vatnsglas og dúndur hausverk :)
En alveg þess virði...einu sinni á ári .

Njótið dagsins og smakkið á súkkulaði án mórals :)