Fara í efni

Annar í Páskum og ekkert niðurbrot.

Ekki leifa nammidegi að verða af nammidögum. Halda sig við sitt.
Nýr dagur er nýtt upphaf.
Nýr dagur er nýtt upphaf.

Góðan daginn .

Það eru páskar gott fólk :)
Njótið þessa daga.
Ekki byrja daginn á að brjóta þig niður þótt Páskaegg í bunkum hafi runnið niður í nammilandinu í gær.
Dagurinn í dag er alveg splunkunýr og alveg alltí lagi að koma sér í gírinn aftur og halda áfram því góða sem lífið bíður uppá .
Njóta lífsins ekki byrja á niðurbroti.

Ég tók þá ákvörðun að Páskaeggið mitt yrði borðað á páskadag og notið :)
Hef örugglega borðað 1/2 eggið.
En Páskaeggið er ekki í boði í dag.
Núna er bara halda áfram og hlakka til að halda áfram á hollustu brautinni .
Eitt páskaegg kemur mér ekki á þann stað sem ég byrjaði á....svo ekkert niðurbrot hér :) 

Mér finnst best að vinna þetta svona.
Gera samninga við sjálfan mig.
Ekki leifa nammidegi að verða af nammidögum.
Halda sig við sitt.

Heilsuborgin er opin í dag og ég ætla hysja gallann upp eftir smá stund 

Lífð er alltof stutt í niðurbrot og pirring .
Svo njótum og hugsum vel um hvern dag.

Eigið góðan dag .