Fara í efni

Gúllassúpa sem allir elska.

Svona súpur eru æði og verða betri með hverjum deginum :)
Gúllassúpa.
Gúllassúpa.
Kvöldmaturinn.

Grílupotturinn var tekin fram um miðjan daginn 
Gúllassúpa mallaði þar og "malaði" 
Matarboð eftir frábæran dag í sólinni 

Svona súpur eru æði og verða betri með hverjum deginum :)

Uppskrift.

700gr Nautagúllas
2 Laukar
5 Hvítlauksrif
2 tsk . olía
3 msk. Paprikuduft
Safi úr 1/2 lime
2 Lítra vatn
1 1/2 msk. grænmetis kraftur frá Sollu
3 msk. Kúmenfræ
3 tsk. Meiran (majoran)
2 Bökunarkartöflur ( eða 4 litlar)
6 stórar Gulrætur
2 rauðar Paprikur
2 dósir Tómatur í dós ( sykurlaust)
Gott salt og pipar
cayenne pipar ( algjörlega eftir smekk...má sleppa . Þetta er mjög sterkur pipar)

1. Merja hvítlauk og kreista Lime safann yfir. Skera lauk niður smátt og blanda öllu vel saman .
Klippa kjötið ( fljótara en að skera niður) í litla munnbita og blanda öllu saman. Fínt að leifa þessu að standa í um klukkutíma.

2. 1 tsk. af olíu sett í pott og kjötið og laukurinn steikt saman. Papriku kryddinu stráð vel yfir og hrært sman.
Bætið vatninu yfir ásamt grænmetiskraftinum, Kúmeni og meiran kryddinu.
Látið sjóða við vægan hita í 45min.

3. Flysjið kartöflurnar og skera niður smátt ásamt grænmetinu.

4. Setjið út í pottinn hræra vel og bæta tómat í dós við. Krydda til .
sjóðið allt saman í 30min.

5. Fínt að nota cayenne pipar og sýrðan rjóma með eftir smekk :)