Fara í efni

Eggjakaka með Kínóa.

Setti á pönnu og raðaði tómat og Avacado yfir. Í lokin smá Camenbert.
Kínóa Eggjakaka.
Kínóa Eggjakaka.

Hollustu hádegi.

Eftir frábæran tíma í Heilsuborginni í morgun kallaði líkaminn á hreina hollustu.

Quinoa/Kínóa Eggjakaka.

3 msk. soðið Kínóa
2 egg
Avacado
Tómatar
Camenbert
chilli Salt og pipar

Aðferð.

Átti til soðið Kínóa svo langaði að prufa með eggjum.
Þeytti upp eggin með Kínóa.
Setti á pönnu og raðaði tómat og Avacado yfir.
Í lokin smá Camenbert.
Salt og pipar .....líka ágætt að setja í blönduna áður en sett á pönnuna.
Líka örugglega gott að nota meira af kryddi 
Síðan setti ég þetta í lokin inn í ofn í nokkrar mínútur til að fá toppinn vel eldaðan.
Þetta var súper gott og ég er pakksödd :)