Fara í efni

Er þetta þess virði ???

Svarið er já!!!!! Þetta er allt þess virði. Þótt líkaminn í dag líði eins og eftir hægfara yfirferð á valtara!! Hver einasti vöðvi æpir. En að sjá hvað hægt er að gera! Að það sé hægt ef maður bara aldrei gefst upp!!!
Allt er hægt bara ekki gefast upp.
Allt er hægt bara ekki gefast upp.

Góðan daginn :)

Jæja frí og páskar og allt.
Og ég vakanði eins og ég hefði orðið undir valtara.
Tók aðeins of mikið á því í salnum í gær í Heilsuborginni.
Mig verkjar í hvern einasta vöðva í líkamanum.
En þetta er svo skrýtið eins vont og þetta er....þá er þetta samt svona GOTT/VONT !

En ég er búin að vera hugsa smá í morgun.
Var eitthvað að rugla í sjálfri mér.
Er þetta þess virði??
Er þetta nú ekki komið gott?
Er þetta ekki aðeins of mikið fyrir konu með hættulegan sjúkdóm?
Ætlarðu að skora endalaust á sjálfan þig og alltaf aðeins lengra......
Bæta endalaust á stöngina :)
Lyfta aðeins þyngra!
Fara aðeins hraðar.....hlaupa aðeins lengra.
Læra meira um mataræðið ?
Er þetta í alvöru þess virði???

Þess vegna setti ég saman þessar myndir :)
Ég skoðaði þær vel.
Fór yfir tímabilin sem þessar myndir tilheyra....
Hvernig leið mér á þessu tímabili???
Er þetta þess virði???

Svarið er já!!!!!
Ég er á lífi :)
Og ég vil lifa lifandi.
Þetta er allt þess virði.
Þótt líkamanum í dag líði eins og eftir hægfara yfirferð á valtara!!
Hver einasti vöðvi æpir.
En að sjá hvað hægt er að gera!
Að það sé hægt ef maður bara aldrei gefst upp!!!
Heldur áfram á hverjum degi því sem maður fór af stað með.
Að komast í gott form.
Að verða FIT!
Þetta tekur tíma og það eru átök.
En þetta er þess virði alla leið   

Aldrei aldrei gefast upp.

SKAL-VIL-GET !

Eigið góðan dag.