Fara í efni

Tíu snilldar leiðir til að nota alla stöku sokkana sem safnast upp

Allir sem sjá um þvottinn á sínu heimili þekkja það að sitja uppi með nokkra staka sokka eftir dag í þvottahúsinu. Við klórum okkur alltaf jafnmikið í hausnum yfir þessu en af einhverri óskiljanlegri ástæðu týnist annar helmingurinn af parinu oftar en við viljum sætta okkur við.
Tíu snilldar leiðir til að nota alla stöku sokkana sem safnast upp

Allir sem sjá um þvottinn á sínu heimili þekkja það að sitja uppi með nokkra staka sokka eftir dag í þvottahúsinu.

Við klórum okkur alltaf jafnmikið í hausnum yfir þessu en af einhverri óskiljanlegri ástæðu týnist annar helmingurinn af parinu oftar en við viljum sætta okkur við.

En ekki hafa áhyggjur og alls ekki henda þessum munaðarlausu sokkum í ruslið. Það er nefnilega hægt að nýta þá í eitt og annað.

Eins og til dæmis allt þetta hér:

1. Settu skóna þína í stöku sokkana

Þegar þú ert að pakka í ferðatösku fyrir þig eða börnin – settu þá skóna í stöku sokkana áður en þú pakkar þeim í ferðatöskuna. Þannig smitast engin óhreinindi úr þeim í fötin.

2. Losaðu þig við vonda lykt úr skápunum þínum.

Taktu hreinan stakan sokk og fylltu hann af kaffikorgi og hengdu hann inn fataskápinn þinn eða jafnvel ísskápinn, hann mun draga í sig alla vonda lykt.

3. Þrífðu og bónaðu bílinn

Í staðinn fyrir að grípa í svamp næst þegar þú ætlar að þrífa bílinn þinn, gríptu þess í stað með þér munaðarlausu sokkana og notaðu þá. Virka bæði vel til að þrífa bílinn og bóna.

4Dustaðu burt köngulóavef

Skelltu einum stökum sokk á kústskaft og þrífðu köngulóavef úr hornum eða hvar sem þeir eru.

5Snilld sem hitavörn á ferðamálið þitt

Til að brenna sig ekki á ferðamálinu þínu þegar þú hefur hellt í það nýju og heitu kaffi. Föndraðu þína eigin hitavörn úr stroffinu á sokknum.

6. Notaðu stöku sokkana til að rispa ekki gólfið

Ef þú ert að flytja eða bara færa til húsgögn til að breyta til heima hjá þér. Klæddu fæturna á borðstofustólunum í stöku sokkana og dragðu þá til að vild án þess að rispa gólfið. . . LESA MEIRA