Fara í efni

4 ástæður fyrir því að svefn er góður fyrir heilsuna?

4 ástæður fyrir því að svefn er góður fyrir heilsuna?
Það er margt sem við ættum að gera á hverjum degi
til að halda í góða heilsu: Til dæmis að hreyfa okkur,
borða vel og drekka vatn. En af einhverjum ástæðum
er svefn ekki ofarlega á listanum.

 

 

 

 


Samkvæmt sérfræðingum er góður svefn lífsnauðsynlegur fyrir líkamlega og andlega heilsu okkar. 
Það að þjást af  svefnleysi getur haft slæm varanleg áhrif, svo það er kominn tími til að
forgangsraða. Til að veita þér innblástur þá eru hér fjórar helstu ástæður fyrir því
að líkami þinn og heili þurfa góðan svefn: 

  

Ástæða 1: Hjálpar heilastarfsemi 

Þegar við fáum góðan nætursvefn erum við meira vakandi og skýr. Hlutir eins og nám,
lausn vandamála og ákvarðanataka verða auðveldari. En þegar við missum svefn 
þá minnkar frammistaða heilans. Við erum hæg og sein að bregðast við. Langvarandi svefnleysi
getur skert dómgreind okkar og leitt til alvarlegra slysa.
Reyndar er þreytan ein aðalorsök bænvænna bílslysa. 

  

Ástæða 2: Heldur tilfinningum í skefjum 

Þegar við erum vel hvíld erum við betur fær um að stjórna tilfinningum okkar og hegðun.
Til dæmis, án fullnægjandi svefns, geta fullorðnir upplifað skapsveiflur og börn geta átt í
reiðiköstum eða í vandræðum með að umgangast aðra. Svefnskortur er einnig tengdur
þunglyndi, sjálfsvígum og áhættuhegðun. 

  

Ástæða 3: Dregur úr sjúkdómaáhættu 

Fólk með langvarandi svefnleysi er einnig með aukna hættu á hjartasjúkdómum,
nýrnasjúkdómum, háum blóðþrýstingi, sykursýki og heilablóðfalli. Að auki hefur svefnleysi
einnig áhrif á ónæmiskerfið. Einstaklingar sem þjást af svefnleysi geta átt erfiðara
með að vinna á algengum vírusum, eins og kvefi eða flensu. 

  

Ástæða 4: Heldur þyngd í skefjum 

Svefnleysi hefur áhrif á getu líkamans til að stjórna matarlystshormónum, þannig að þeir sem
hafa slæmar svefnvenjur hafa tilhneigingu til að hafa meiri matarlyst og borða meira en þeir
sem sofa vel. Reyndar leiddi rannsókn í ljós að fullorðnir sem þjást af svefnleysi voru 55% líklegri
til að vera í ofþyngd. Ef þú ert að reyna að léttast er mikilvægt að fá hvíldina sem góður nætursvefn gefur 

  

Hversu mikið þarf að sofa? 

Lengd svefns er mismunandi fyrir hvern einstakling og fer eftir aldri.  
National Sleep Foundation mælir með eftirfarandi svefnvenjum: 

Nýburar (0-3 mánuðir): 14-17 klukkustundir 

Ungabörn (4-11 mánuðir): 12-15 klukkustundir 

Smábörn (1-2 ára): 11-14 tímar 

Leikskólabörn (3-5): 10-13 klukkustundir 

Börn á skólaaldri (6-13): 9-11 klst 

Unglingar (14-17): 8-10 klukkustundir 

Yngri fullorðnir (18-25): 7-9 klukkustundir 

Fullorðnir (26-64): 7-9 klukkustundir 

Eldri fullorðnir (65+): 7-8 klukkustundir 

 Ef þú átt erfitt með svefn, þá er mikilvægt að leita til heimilislæknis.  

 

Heimild: achn.net