Fara í efni

Verum klár í sólinni og notum sólarvörn

Notum sólarvörn.
Verum klár í sólinni og notum sólarvörn

Nú er kominn sá árstími þegar fólk flykkist út til að njóta útiveru og sólar.

Sólin gefur okkur kærkomna birtu og hlýju en einnig útfjólubláa geislun sem getur skaðað okkur ef við förum ekki varlega.

Húð barna er miklu viðkvæmari en húð fullorðinna. Því er það sérstaklega mikilvægt að vernda
húð þeirra og koma í veg fyrir að þau brenni í sólinni. Ef farið er út í sólina um miðjan dag er
besta vörnin föt og hattur, jafnt fyrir börn og fullorðna, en sólaráburð má bera á þau svæði sem eru ber.
Notum alltaf sólarvarnaráburð - Áburðurinn verður að vera með sólvarnarstuðulinn 15 eða hærri.
Bera á áburðinn á hálftíma áður en farið er í sólina og endurtaka á tveggja klukkutíma fresti.
Áburðurinn þarf að vera í nægjanlegu magni til að þekja vel þau húðsvæði sem sólargeislarnir fá að leika
óhindraðir um. Munum að jafnvel vatnsþolinn sólaráburður máist af við það að þurrka sér með handklæði.

Nivea



Að njóta sólar og útveru þarf ekki að vera mikil áhætta ef við fylgjum nokkrum einföldum ráðum og
notum heilbrigða skynsemi til að forðast það að brenna í sólinni.

Í skjalinu Verum klár í sólinni eru nokkrar ábendingar um hvernig við getum varist hættulegum geislum sólarinnar á suðrænum slóðum en gleymum ekki að sökum þess hve tært andrúmsloftið er á Íslandi getur útfjólublá geislun frá sólinni valdið sólbruna á skömmum tíma.


Sjá nánar: Verum klár í sólinni Opnast í nýjum glugga

Sveinbjörn Kristjánsson
verkefnisstjóri