Fara í efni

Staðfest mislingasmit í flugvélum Icelandair

Staðfest mislingasmit í flugvélum Icelandair

Kanadísk yfirvöld hafa nú staðfest að einstaklingur með smitandi mislinga var um borð í vélum Icelandair þann 30.5.2018 frá Berlín til Íslands og frá Íslandi til Toronto (FI529 og FI603).

Icelandair, í samvinnu við sóttvarnalækni, hafa sent farþegum ofangreindra véla nauðsynlegar upplýsingar og leiðbeiningar. Í þessum leiðbeiningum eru farþegar hvattir til að leita til sinna lækna fram til 20. júní finni þeir fyrir einkennum sem geta bent til mislinga, sérstaklega ef þeir eru óbólusettir.

Einkenni mislinga koma yfirleitt fram 10-14 dögum eftir smit en að hámarki geta liðið 3 vikur.

Sjá nánar:

Sóttvarnalæknir