Fara í efni

Móðir Jörð hlaut Fjöreggið 2015

Fjöregg MNÍ 2015 var afhent á Matvæladaginn 15.október en verðlaunin eru veitt fyrir lofsvert framtak á matvæla- og næringarsviði.
Hér er Eygló Björk með Fjöreggið 2015
Hér er Eygló Björk með Fjöreggið 2015

Fjöregg MNÍ 2015 var afhent á Matvæladaginn 15.október en verðlaunin eru veitt fyrir lofsvert framtak á matvæla- og næringarsviði. Ragnheiður Héðinsdóttir, forstöðmaður matvælasviðs Samtaka iðnaðarins afhenti fjöreggið á Matvæladaginn við hátíðlega athöfn.  

Að þessu sinni hlaut Móðir Jörð verðlaunin. 

Verðlaunagripurinn er íslenskt glerlistaverk, sem táknar Fjöreggið og hefur verið gefið af SI frá upphafi, í yfir 20 ár.

Fjölbreytt flóra tilnefninga barst undirbúningsnefnd fyrir veitingu Fjöreggsins. Tilnefnd voru fyrirtæki, framleiðsluvörur, upplýsingaveitur um matvæli og næringu og einstaklingar.


Fimm aðilar voru tilnefndir til Fjöreggsins 2015 og voruð það:

Matur og drykkur: Fyrir að kynna íslenskar matarhefðir á nýstárlegan hátt. Matur og drykkur er nýlegur veitingastaður sem byggir á gömlum íslenskum hefðum í matargerð. Á veitingastaðnum eru gamlar og góðar uppskriftir sameinaðar besta fáanlega hráefni með nýstárlegum hætti. Íslenska eldhúsinu er gert hátt undir höfði, en með nútímalegri nálgun.
 
Búrið (Eirný Sigurðardóttir): Fyrir skemmtilega og nýstárlega nálgun á íslenska sælkeramarkaðnum. Búrið hefur verið í fararbroddi við að skapa vettvang fyrir smáframleiðendur til að efla sína framleiðslu og fjölbreytileika í vöruúrvali.

Skólar efh (Ólöf Kristín Sívertsen): Fyrir að hafa heilsueflingu að leiðarljósi við rekstur leikskóla. Fyrirtækið rekur 5 heilsuleikskóla í jafnmörgum sveitarfélögum og hefur frá upphafi (árið 2000) haft heilsueflingu að leiðarljósi undir einkunnarorðunum „heilbrigð sál í hraustum líkama“. 

Móðir Jörð (Eygló Björk Ólafsdóttir): Fyrir ræktun og vöruþróun afurða úr jurtaríkinu á lífrænan hátt. Móðir Jörð ræktar og framleiðir hollar og bragðgóðar afurðir sem framleiddar eru í sátt við náttúruna. Hjá fyrirtækinu er lögð mikil áhersla er á að þróa afurðir úr nánasta umhverfi. Dæmi um vörur á markaði eru fjórar úrfærslur af byggi, kornblöndur og kex, sýrt og sultað grænmeti, sultur og ber.  

Skaftafell Delicatessen (Klaus Kretzer): Fyrir að framleiða sælkeravörur úr kindakjöti úr Öræfum. Vörurnar eru framleiddar án aukefna og hafa náð vinsældum meðal sælkera og unnið til verðlauna fyrir matarhandverk bæði innan lands og erlendis.
 

Móðir Jörð hlaut Fjöregg MNÍ 2015

 

Til gamans má geta þess að HÉR getur þú lesið viðtal sem við tókum við hana Eygló Björk nýlega.