Fara í efni

Langhlauparar ársins 2018

Langhlauparar ársins 2018

Arnar Pétursson (5942 stig) og Elísabet Margeirsdóttir (6565 stig) eru langhlauparar ársins 2018 að mati hlaupara og lesenda hlaup.is. Verðlaunin voru afhent í tíunda skipti í dag, laugardaginn 16. febrúar. Í öðru sæti höfnuðu Þorbergur Ingi Jónsson (5887 stig) og Rannveig Oddsdóttir (5162 stig). Í þriðja sæti lentu Hlynur Andrésson (4707 stig) og Elín Edda Sigurðardóttir (4650 stig).

Elísabet er að hljóta nafnbótina fimmta árið í röð og Arnar annað árið í röð. Kosið var á milli sex hlaupara í karlaflokki og sex hlaupara kvennaflokki eftir að lesendur hlaup.is sendu inn tilnefningar.

Hlauparöð FH og Bose er „Götuhlaup ársins 2018“ – Gullspretturinn er „Utanvegahlaup ársins 2018“.
Val á hlaupum ársins var einnig kunngjört á verðlaunaafhendingunni. Hlauparöð FH og Bose hlaut titilinn „Götuhlaup ársins 2018“ og Gullspretturinn hlaut titilinn „Utanvegahlaup ársins 2018“. Í flokki götuhlaupa hafnaði Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks í öðru sæti og Icelandair hlaupið í því þriðja. Í flokki utanvegahlaupa hafnaði Snæfellsjökulshlaupið í öðru sæti og Laugavegshlaupið í því þriðja. Rétt eins og með valið á langhlaupurum ársins þá eru það lesendur hlaup.is sem velja hlaup ársins með einkunnagjöfum.

 „Allir tilnefndir hlauparar eða fulltrúar þeirra“

Frá vinstri: Fulltrúi Þorbergs Inga Jónssonar, móðir Ingvars Hjartarsonar, faðir Stefáns Guðmundssonar, Jóhann Karlsson, Arnar Pétursson, Elísabet Margeirsdóttir, Rannveig Oddsdóttir, Elín Edda Sigurðardóttir, Anna Berglind Pálmadóttir og Anna Keren Jónsdóttir.

 „Langhlauparar ársins 2018 Arnar og Elísabet“

Arnar Pétursson og Elísabet Margeirsdóttir langhlauparar ársins 2018

 „Fulltrúar götuhlaups og utanvegahlaups ársins 2018“

Frá vinstri: Hörður J. Halldórsson og Anna Sigríður Arnardóttir fyrir Hlauparöð FH og Bose og Gríma Guðmundsdóttir og samstarfsmaður fyrir Gullsprettinn.