Fara í efni

Velkomin í opna tíma í núvitund (mindfulness) hjá SÁÁ

mindfulness hjá SÁÁ.
Velkomin í opna tíma í núvitund (mindfulness) hjá SÁÁ

Velkomin í opna tíma í núvitund (mindfulness) hjá SÁÁ í Von, Efstaleiti 7, í hádeginu alla föstudaga frá kl. 12.10 til 13.00.

Tímarnir henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Skráið ykkur á viðburðinn og takið með ykkur gesti. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og nýtt fólk fær sérstaka leiðsögn. Aðgangur er ókeypis en þátttakendur þurfa að skrá nafn sitt á mætingarlista.

Ásdís Olsen sér um að leiða tímana og kenna þátttakendum núvitund (mindfulness).

Ásdís (BEd., MA) er Mindfulness-kennari og hefur sérhæft sig í áhrifaríkum aðferðum til að aukja hamingju vellíðan og sátt í lífi og starfi. Hún kennir jákvæða sálfræði og núvitund/Mindfulness við Háskóla Íslands og starfrækir einnig Mindfulness miðstöðina, mindful.is, ásamt samstarfsfólki.