Fara í efni

Streita og svefntruflanir - Nýtt námskeið að hefjast

Ef þú ert farin að þrá frekara jafnvægi í einkalífi og starfi þá er þetta rétta námskeiðið fyrir þig.
Streita birtist í mörgum  myndum.
Streita birtist í mörgum myndum.

Þriggja kvöld námskeið: Streitustjórnun og betri svefn

Dagana 10. og 17. og 30. október 

Ef þú ert farin að þrá frekara jafnvægi í einkalífi og starfi þá er þetta rétta námskeiðið fyrir þig.

Námskeið í streitustjórnun - Að vera hér og nú 

Fimmtudagana 10. og 17. október klukkan 18:30

  • Er þreytan og orkuleysið að gera útaf við þig?
  • Áttu erfitt með að halda einbeitingu þar sem hugurinn er út um allt?
  • Er tilfinningaþráðurinn styttri en venjulega?
  • Áttu orðið erfitt með að vera raunverulega til staðar og njóta?

Streita birtist í mörgum  myndum. Hún getur birst í líkamlegum einkennum, hugsun, hegðun og tilfinningalegum viðbrögðum og getur haft neikvæð áhrif á daglegt líf okkar á ýmsan máta. Til þess að hægt sé að ná árangri í streitustjórnun er mikilvægt að öðlast innsýn inní eigið ástand. Á þessu námskeiði lærirðu að nema staðar, þekkja einkennin, skoða hvað veldur og fá innsýn í leiðir til að vinna með streituna þína á uppbyggjandi máta. Sérstök áherlsa verður lögð á Núvitund (mindfullness) sem árángursríka leið til að vinna með streitu. 
 

Á þessu námskeiði:

  • Öðlast þú innsýn inn í streitukerfið þitt
  • Lærir þú að meta eigin streitueinkenni og streituvalda
  • Kynnist þú leiðum til að vinna með hvoru tveggja með það að markmiði að öðlast frekara jafnvægi líkamlega sem og andlega.
  • Leiðbeinandi er Sigrún Ása Þórðardóttir, sálfræðingur í Heilsuborg og sálfræðingur og verkefnastjóri streitumeðferðar við HNLFÍ.
     

Erla Gerður Sveinsdóttir læknir - Betri svefn

Miðvikudaginn 30. október klukkan 18:30 

  • Hvernig get ég bætt svefninn?  
  • Hvað þarf ég að gera til að komast af stað til að bæta heilsuna?
  • Erla fjallar um svefntruflanir og leiðir til að bæta svefn
  • Auk þess mun hún draga saman í stuttu máli hvað þarf að gera til að innleiða venjur sem bæta heilsuna og fyrirbyggja heilsubrest

Næsta námskeið verður fimmtudagana 10. og 17. október kl. 18:30 (Streita) og miðvikudaginn 30. október kl. 18:30 (Svefn)

Verð kr. 11.500,- fyrir allt námskeiðið, eða 4.500 fyrir hvert námskeið.

Skráning á mottaka@heilsuborg.is eða í síma 560 1010