Fara í efni

Ráðstefna : Er erfðabreytt framleiðsla sjálfbær?

Ráðstefna Kynningarátaks um erfðabreyttar lífverur á Grand Hótel Reykjavík
erfðabreyttar lífverur
erfðabreyttar lífverur

Ráðstefna Kynningarátaks um erfðabreyttar lífverur

Grand Hótel Reykjavík við Sigtún, Mánudaginn 7. október 2013 kl. 13.30-16.40

Ráðstefnustjóri: Skúli Helgason, stjórnmálafræðingur

13.30 Setning

13.35 Reynsla Bandaríkjanna af notkun erfðatækni í landbúnaði
Kynningarávarp: María Ellingsen, leikstjóri, formaður stjórnar Framtíðarlandsins
Frummælandi: Dr. Doug Gurian-Sherman, vísindafulltrúi á sviði matvæla- og
umhverfismála, Union of Concerned Scientists

14.25 Erfðavísindin, erfðatæknin og áhrif á heilsufar
Kynningarávarp: Gunnlaugur K. Jónsson, forseti Náttúrulækningafélags Íslands
Frummælandi: Dr. Michael Antoniou, Dósent í sameindaerfðafræði,
King´s College London School of Medicine

15.10 Kaffihlé

15.30 Matvæli og fóður vottuð og merkt án erfðabreyttra efna
Kynningarávarp: Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Yggdrasils
Framsögumaður: Dr. John Fagan, sameindalíffræðingur og stofnandi Genetic-ID

16.15 Fyrirspurnir til framsögumanna

16.40 Ráðstefnuslit

Kynning á aðal framsögumönnum:

Dr. Doug Gurian-Sherman mun fjalla um reynslu Bandaríkjamanna af notkun erfðatækni í landbúnaði.
Dr. Gurian-Sherman er vísindastjóri matvæla- og umhverfisverkefnis Union of Concerned Scientists í
Bandaríkjunum. Hann lauk doktorsprófi í plöntusjúkdómafræði frá Kaliforníuháskóla í Berkeley. Eftir það
stundaði hann rannsóknir á sameindalíffræði hrísgrjóna og hveitiyrkja við tilraunastöð bandaríska
landbúnaðarráðuneytisins í Kaliforníu. Hann starfaði sem vísindastjóri við Matvælaöryggissetrið (Centre
for Food Safety) í Washington D.C. Hann stofnaði og stýrði líftækniverkefni við Miðstöð vísinda í þágu
almanna hagsmuna (Centre for Science in the Public Interest). Dr. Gurian-Sherman vann hjá
Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (EPA) við mat á umhverfis- og heilsufarsáhættu af völdum erfðabreyttra
plantna og örvera, en áður starfaði hann í líftæknihópi Einkaleyfastofu Bandaríkjanna. Þá átti hann sæti í
fyrstu ráðgjafarnefnd Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA) um matvælalíftækni.

Dr. Michael Antoniou mun fjalla um erfðavísindin, erfðatæknina og áhrif á heilsufar. Dr. Antoniou er
rannsóknastjóri og dósent í sameindaerfðafræði við læknisfræði- og sameindaerfðafræðideild Kings
College London School of Medicine í Bretlandi. Hann á að baki 32ja ára reynslu í notkun erfðatækni í
rannsóknum á skipan og stýringu erfðavísa, hefur ritað yfir 50 ritrýndar vísindagreinar og á höfundarrétt á
fjölda genatjáninga. Hann hefur, ásamt samstarfsmönnum í háskólasamfélaginu og atvinnulífinu, hagnýtt
uppgötvanir sínar á genastjórnunarferlum til rannsókna og þróunar greiningar- og meðferðarúrræða, m.a.
genameðferð við arfgengum og áunnum erfðasjúkdómum. Dr. Antoniou hefur annast ráðgjöf á sviði
líftækni fyrir fjölda stofnana, samtaka og stjórnmálaflokka, m.a. um hagnýtingu erfðatækni í læknisfræði
og landbúnaði. Hann sat í erfðavísindanefnd bresku stjórnarinnar sem sett var á fót í tengslum við
samráðsferli sem stjórnin efndi til á sínum tíma. Dr Antoniou er tíður framsögumaður á fundum og
ráðstefnum um þessi mál og er títt vitnað til hans í fjölmiðlum.

Dr John Fagan mun ræða um matvæli og fóður vottað og merkt án erfðabreyttra efna. Dr. Fagan er með
doktorsgráðu í lífefnafræði, sameindalíffræði og frumulíffræði frá Cornell háskóla. Hann er virtur m.a. fyrir
þekkingu á sjálfbærni og líffræðilegu öryggi í matvælaframleiðslu. Árið 1996 stofnaði hann og varð
jafnframt vísindastjóri fyrir Global ID Group Inc., þar sem hann þróaði tæki til að sannprófa hreinleika,
öryggi og sjálfbærni. Auk þess þróaði hann þar DNA próf fyrir erfðabreytt matvæli og mótaði fyrsta
vottunarkerfið fyrir matvæli án erfðabreyttra efna. Það gerir fyrirtækjum á öllum stigum fæðukeðjunnar
kleift að tryggja fullan rekjanleika og gegnsæi í viðskiptum með erfðabreyttar afurðir. Hann mótaði einnig
vottunarkerfi fyrir félagslega ábyrgð og umhverfissjálfbærni í landbúnaði og matvælaframleiðslu, sem
ProTerra stofnunin stýrir nú. Dr. Fagan er stofnandi og stjórnandi Earth Open Source
(www.earthopensource.org) stofnunarinnar sem vinnur að því að efla samstarf um aukna sjálfbærni í
fæðukeðjunni. Dr Fagan hefur flutt hundruði fyrirlestra víða um heim, enda er sérþekking hans eftirsótt í
atvinnulífi og stjórnstofnunum, meðal ráðamanna, vísindamanna og almennings.

Aðstandendur Kynningarátaks um erfðabreyttar lífverur eru:
Matvæla- og veitingafélag Íslands, Landvernd, Náttúrulækningafélag Íslands,
Neytendasamtökin, Slow Food Reykjavík og Vottunarstofan Tún.

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Á. Gunnarsson, s. 511-1330/820-4130

Heimasíður aðstandanda átaksins:
Matvæla- og veitingafélag Íslands - www.matvis.is
Náttúrulækningafélag Íslands - www.nlfi.is
Slow Food Reykjavík - www.slowfood.is
Landvernd - www.landvernd.is
Neytendasamtökin - www.ns.is
Vottunarstofan Tún - www.tun.is