Fara í efni

Í janúar býður Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins upp á spennandi námskeið og fjölbreytta dagskrá!

Spennandi námskeið.
Í janúar býður Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins upp á spennandi námskeið og fjölbreytta dagskr…

BESTA GJÖFIN: ÁHRIF HUGLEIÐSLU Á BÖRN OG UNGMENNI 
Fimmtudaginn 18. janúar kl. 17:00. 
  
Stefanía Ólafsdóttir, grunnskólakennari og leiðbeinandi í hugleiðsluskólanum Lótushúsi að flytja erindi um bók sína „Undir Heillastjörnu”. Erindið er ætlað foreldrum og forráðamönnum barna. 
  
Bókin inniheldur einfaldar hugleiðsluæfingar og heillakort fyrir börn á breiðum aldri. Einnig verður rætt um leiðir til að skapa endurnærandi stundir með fjölskyldunni.



HUGRÆN ATFERLISMEÐFERР
Hefst þriðjudaginn 23. janúar kl. 14:00-16:00 og verður vikulega í fjögur skipti. 
  
Ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum. Tilgangurinn er að vinna gegn tilfinningalegri vanlíðan. 
  
Leiðbeinandi er Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi.



GOTT ÚTLIT - BETRI LÍÐAN 
Þriðjudaginn 30. janúar kl. 10:00-12:00. 
  
Námskeiðið er ætlað konum sem eru í krabbameinsmeðferð. Næstu námskeið 2018 eru: 
Þriðjudagana  30. janúar, 27. febrúar, 27. mars, og 24. apríl kl. 10:00-12:00. 
  
Sérfræðingur frá Lancome leiðbeinir um förðun, umhirðu húðar o.fl.


VIKULEGIR FASTIR VIÐBURÐIR 
Þriðjudagar

  • 13:00-13:40 - Tíbetskar öndunaræfingar.

Miðvikudagar

  • 11:30-12:00 - Hópslökun
  • 13:00-13:30 - Samtal um réttindamál, allir velkomnir!

Fimmtudagar

  • 13:00-15:00 - Handavinnuhorn og bókakaffi.

 

 

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið virka daga kl. 9:00-16:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00. Netfang: radgjof@krabb.is