Fara í efni

HÓPEFLI - STJÓRNUN OG FORYSTA

Hópstarf hjá Forvörnum.
HÓPEFLI - STJÓRNUN OG FORYSTA

Tilgangur hópstarfs hjá Forvörnum er að þróa farveg fyrir aðlögun að breyttum aðstæðum, auka færni og styrkja fagmennsku í samvinnu með starfsfólk.

Lögð er áhersla á að víkka sjóndeildarhringinn og leitast við að fá fram fleiri sjónarhorn í stjórnunarvinnu. Þá er áhersla lögð á að þjálfa hlutleysi og efla traust og skilning á aðstæðum samstarfsfólks.

  • Í hópstarfi er ýtt undir gagnkvæman stuðning einstaklinga til þess að ná betri tökum á vinnunni
  • Leiðsögn í sjálfseflingu og að byggja upp sjálfsmynd
  • Auka virkni og getu í þeim tilgangi að auka lífsgæði og efla samkennd
  • Styrkja og efla skilning á afstöðu fólks og viðbrögðum við breytingum
  • Að þekkja styrkleika sína og veikleika og greina drifkraft og hamlandi öfl
  • Huga að hindrunum og finna  leiðir til að koma í veg fyrir þær
  • Finna hvernig gagnkvæm félagsleg tengsl geta verið styrkjandi í samskiptum
  • Vinna að jákvæðri þróun og breytingum frá degi til dags
  • Greina mismunandi tegundir andstöðu við breytingum
  • Þátttakendur geta rætt reynslu sína og lært að virða ólíkar skoðanir
  • Byggja á fortíð og nútíð og horfa til framtíðar

Hópstarfið byggir á gagnkvæmu trausti og trúnaði. Áætlað er að hittast í alls 10 skipti.

Skráning í hópa í síma 866 2296 og tölvupósti julia@stress.is

Nánari upplýsingar um  FORVARNIR – STREITUSKÓLANN OG STREITUMÓTTÖKUNA er að finna á heimasíðuunni  www.stress.is

Dr. Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir,

Sérfræðingur í félagsráðgjöf á heilbrigðissviði, með vottun Vinnueftirlits ríkisins.

Sími: 866-2296                             

Guðrún Blöndal, Hjúkrunarfræðingur

Sími: 899-1163