Fara í efni

Helgarnámskeið í sjálfstyrkingu fyrir stelpur

Sjálfstyrking fyrir stelpur.
Helgarnámskeið í sjálfstyrkingu fyrir stelpur

Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir stelpur verður haldið helgina 11. og 12. febrúar 2017 í miðbæ Reykjavíkur.


Kristín Tómasdóttir kennir námskeiðið og byggir það á nýjustu bókinni sinni Stelpur- 10 skref að sterkari sjálfsmynd.

Á námskeiðinu verður leitast við að kenna þátttakendum þrennt:

1) Að þekkja hugtakið sjálfsmynd
2) Að þekkja eigin sjálfsmynd
3) Leiðir til þess að hafa jákvæð áhrif á eigin sjálfsmynd

Námskeið fyrir 10 - 12 ára er kennt klukkan 10.00-12.00
Námskeið fyrir 13 - 15 ára er kennt klukkan 13.00-15.00

Verð 16.900 kr, hressing og kennslugögn eru innifalin í verði.