Fara í efni

Niðurrif í eigin garð og annarra - Guðni lífsráðgjafi með hugleiðingu á mánudegi

Niðurrif í eigin garð og annarra - Guðni lífsráðgjafi með hugleiðingu á mánudegi

Setjum þetta með þreytuna í veraldlegt samhengi.

Segjum að þú farir í gegnum venjulega viku með öllu sem henni tilheyrir, löngum vinnudögum, árekstrum við starfsfélaga, yfirmenn eða viðskiptavini, mála- miðlunum við makann, uppeldi á börnunum, samskiptum við bankann og lánadrottna, húsfundi, innkaupum, umferðartöfum, sjónvarps- glápi, eldamennsku og öllu heila klabbinu; öllu sem þú notar til að valda streitu af einhverri tegund. Á föstudegi ertu örmagna, orkan farin, lundin ólétt og gráminn siglir með þér inn í helgina.

Kannastu við þetta? Bætum einu við.

Segjum að alla sömu viku hafir þú haft einstakling við hliðina á þér, einstakling sem elti þig og lét þig heyra það, bæði með lágværu tuði og stöku öskri. Einstakling sem fann þér allt til foráttu, sem nýtti hvert „feilspor“ til að benda þér á að allt sem þú gerðir væri ómögulegt. Hann skammaði þig fyrir að fara of seint að sofa, fresta vekjaraklukkunni of oft á morgnana, pirrast út í börnin og koma of seint með þau í skólann. Hann tuðaði yfir aksturslagi þínu á leiðinni í vinnuna, einbeitingarskortinum og bunkanum af verkefnum sem hafði hlaðist upp í vinnunni, lágu laununum sem þú færð fyrir vinnufram- lagið, ruslfæðinu sem þú borðaðir í hádeginu og súkkulaðistykkinu í kaffitímanum. Jafnframt taldi hann þér trú um að börnin væru ómöguleg, makinn enn verri, vinnufélagarnir líka (sérstaklega yfirmennirnir), ökumennirnir í umferðinni, skattstjórinn, stjórnmálaflokkarnir, fjölmiðlarnir, ríkisstjórnin ...

Allir yrðu þreyttir með svona þreytandi einstakling gjammandi yfir öxlina á sér í heila viku. Hvað þá allt lífið. Enginn friður, aldrei. Alltaf gjamm, niðurrif, efi, höfnun, gremja. Í eigin garð og annarra.

En er það ekki svona sem við lifum mörg hver? Við erum – innra með okkur – grimmari við okkur sjálf en við nokkurn annan. Við gefum okkur aldrei nokkurt einasta tækifæri og spörkum í okkur liggjandi, oft á dag.

Af hverju erum við þá svona þreytt? Af því að við erum svona þreytandi. Einfalt mál.