Fara í efni

Ekkert kemur af sjálfu sér - Guðni og hugleiðing á laugardegi

Ekkert kemur af sjálfu sér - Guðni og hugleiðing á laugardegi

Ekki byltingu – aðeins breytt viðhorf 
Það þarf ekki að brjóta neitt til að frelsast og byrja að skína. Aðeins taka ábyrgð á eigin viðhorfum og forsendum.

Ekkert kemur af sjálfu sér – en allt kemur af sjálfum þér.

Að ákveða tilgang sinn þýðir ekki að þú eigir�að hætta í dagvinnunni þinni á morgun eða�umbylta öllu þínu lífi. En manneskja sem lætur�sér leiðast í venjulegri vinnu og breytir viðhorfum sínum með því að láta af vorkunn og viðnámi finnur ljósið og orkuna byrja að streyma á ný. Hún finnur fyrir auknum krafti með því einfaldlega að mæta á svæðið og leggja sig fram. 
Hún tekur ábyrgð. 
Breyttar forsendur gagnvart dagvinnunni hafa í för með sér aukna orku og aukið vald í eigin lífi – tíðnin breytist og það smitast yfir á önnur svið lífsins.

Velsældin er hafin.