Fara í efni

Vegan banana/hafra pönnukökur – geggjaður morgunverður

Vegan banana/hafra pönnukökur – geggjaður morgunverður

Þessar dásamlegu vegan pönnsur er svo einfalt að gera og ekki er verra að þær eru æðislega góðar.

Muna að nota glútenlausa hafra ef þú vilt hafa þær glútenlausar.

Uppskrift er fyrir 6 pönnukökur.

Hráefni:

1 bolli af glútenlausum höfrum

½ bolli af möndlu mjólk

2 msk af maple sýrópi

1 vel þroskaður banani

1 tsk af vanillu

1 tsk af lyftidufti

¼ tsk af grófu salti

Nota kókósolíu fyrir eldun

Gott að nota með: Maple sýróp, ferska ávexti, hnetusmjör, ber og banana.

Leiðbeiningar:

Takið öll hráefnin og skellið í blandarann, hafra, möndlumjólkina, sýróp, banana, vanillu, lyftidufti og salt.

Látið blandast vel saman.

Takið góða pönnu og smyrjið hana með kókósolíu og hafið hita á meðal.

Með góðri skeið skal mæla stærð pönnukaka og skella þeim á pönnuna. Látið þær steikjast báðu megin eða þar til brúnir eru gull brúnar, tekur um 2-3 mínútur.

Geggjað svo að bera fram með sýrópi, ferskum ávöxtum, berjum, hnetusmjöri eða banana.

Njótið vel!