Fara í efni

Kjósið langhlaupara ársins 2015 - Hér eru þau síðustu tvö sem tilnefnd eru

Kjósið!
Kjósið langhlaupara ársins 2015 - Hér eru þau síðustu tvö sem tilnefnd eru

Í sjöunda skiptið stendur hlaup.is fyrir vali á langhlaupara ársins, bæði í karla- og kvennaflokki. Þá er einkum verið að horfa til afreka í götu- og utanvegahlaupum eða annarri keppni í langhlaupum.

Afrek er afstætt, getur verið góður tími miðað við aldur, óvenjulegt verkefni, þrautseigja og kjarkur eða hvaðeina sem hægt er að meta til viðurkenningar.

Samtals voru 30 hlauparar tilnefndir í karla- og kvennaflokki til langhlaupara ársins 2015. Að þessu sinni eru það 6 konur og 6 karlar sem mynda endanlegan lista hlaupara sem kjósa á um. Það val var ekki auðvelt frekar en áður, því margir af þeim hlaupurum sem tilnefndir voru, hafa hver á sinn hátt unnið góð afrek og/eða sýnt mikla þrautseigju á síðasta ári.

Valnefnd til að velja úr tilnefningum þeim sem bárust, skipa Torfi Helgi Leifsson umsjónarmaður hlaup.is, Sigurður P. Sigmundsson langhlaupari og þjálfari, Gunnar Páll Jóakimsson þjálfari og fyrrum þjálfari Skokkhóps ÍR, Erla Gunnarsdóttir fyrrum þjálfari Skokkhóps Fjölnis í Grafarvogi og Margrét Elíasdóttir þjálfari KR-skokk.

Hægt verður að kjósa til kl. 24 mánudaginn 1. febrúar 2016. Verðlaunaafhending verður fyrstu helgina í febrúar (nánari tímasetning síðar) og tilkynnt verður um niðurstöðu kosningar í kjölfarið á því hér á hlaup.is.

Allir sem kjósa fara í pott og geta unnið hlaupaskó.

Form til að kjósa langhlaupara ársins (athugið að gefa besta hlaupara 6 stig og svo koll af kolli)

Þorbergur Ingi Jónsson (33 ára) byrjaði keppnistímabilið á því að bæta sinn besta tíma í hálfmaraþoni (1:07:53) í Berlín í lok mars. Tók svo þátt í heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum er fram fór í Annecy í Frakklandi. Um var að ræða 85 km vegalengd með 5.300 m samanlagða heildarhækkun. Þorbergur Ingi náði 9.sæti í hlaupinu á 8:47 klst. og er þar með kominn í heimsklassa í þessari íþróttagrein. Þorbergur Ingi fylgdi þessum árangri eftir með því að stórbæta brautarmetið í Laugavegshlaupinu (um 55 km) um miðjan júlí á 3:59:13 klst  og varð loks í 16. sæti í Mt. Blanc CCC 101 km fjallahlaupi í lok ágúst.

Sigurbjörg Eðvarðsdóttir (57 ára) er búin að vera lengi í fremstu röð íslenskra kvenna í langhlaupum. Hún tók þátt í Moskvu maraþoni 20.sept og hljóp á 3:15:20 klst og sigraði í sínum aldursflokki. Tími Sigurbjargar í hlaupinu var jafnframt besti tími íslenskrar konu á árinu.

Af vef hlaup.is