Fara í efni

Silfurleikar ÍR slá þátttökumet

Silfurleikar ÍR í frjálsíþróttum fara fram í Laugardalshöllinni nk. laugardag.
Þrístökk
Þrístökk

Silfurleikar ÍR í frjálsíþróttum fara fram í Laugardalshöllinni nk. laugardag.

Mótið er haldið fyrir 17 ára og yngri og fer nú fram í 18.sinn en það er haldið til að minnast þess mikla afreks þegar Vilhjálmur Einarsson vann til silfurverðlauna í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956. Þrístökk skipar því sérstakan sess á mótinu eins og vera ber.

Skráðir eru 730 keppendur frá 29 félögum. Skráningar í greinar eru 2175. Þetta er mesti fjöldi sem skráður hefur verið á mótið frá upphafi en flestir voru keppendur 666 árið 2012.

Það er ljóst að gróskan er mikil í frjálsíþróttum og menn kunna að meta vönduð og vel framkvæmd mót. Við hjá ÍR hlökkum til að eiga skemmtilegan dag í höllinni með upprennandi íþróttastjörnum þjóðarinnar og vonum að þið sjáið ykkur fært að koma og fylgjast með.

Sjá má meira um mótið á heimasíðu ÍR www.ir.is: frjálsar