Fara í efni

Spurning: geta brjóstin sigið með tímanum ef þú ert hlaupari ?

Spurt er: Þegar maður hleypur þá hossast brjóstin mikið upp og niður, munu þau byrja að síga fyrr ef ég fer að hlaupa reglulega?
síga brjóst fyrr ef að maður er hlaupari?
síga brjóst fyrr ef að maður er hlaupari?

Spurt er:   Þegar maður hleypur þá hossast brjóstin mikið upp og niður, munu þau byrja að síga fyrr ef ég fer að hlaupa reglulega?

Svarið:   Það eru takmarkaðar rannsóknir til á þessu málefni en það er hægt að kenna hlaupum um ef brjóst eru sigin. Það að hlaupa, skapar mikla upp, niður og til hliðar hreyfingar á brjóstum og eru þessar brjóstahreyfingar sem mynda töluna átta ein af ástæðum þess að brjóstin síga.

En svona áður en þú hendir hlaupaskónum upp í skáp og skráir þig í jóga að þá þarftu að vita að öll brjóst síga fyrir með tímanum. Það er náttúrulegt fyrir kollagenið sem heldur brjóstum stinnum að teygjast út með tímanum. Einnig má þakka þyngdarafli, tíma, meðgöngu, þyngdar aukningu eða tapi og meira að segja reykingum, en þær veikja kollagenið í líkamanum umtalsvert.

Genin skipta líka máli, sumar konur eru einfaldlega með stinnari brjóst en aðrar því þær hafa sterkara kollagen. Það er ómögulegt að vita hversu stórt hlutverk hlaupin spila inn í brjóstasig.

Ef þú ert hlaupari þá skaltu halda því áfram og alltaf nota góðan sporthaldara sem á að styðja vel við brjóstin. Veldu sporthaldara sem er með tveimur skálum en ekki heill að framan, það gerir brjóstunum engann greiða að hafa þau klesst framan á þér. Vertu einnig viss um að fá næginlegt C-vítamín því það byggir upp kollagenið. C-vítamín má finna í appelsínum, sítrónum og grænu grænmeti.

Heimildir: womenshealthmag.com