Fara í efni

Heilsuhlaup Krabbameinsfélags Íslands verður fimmtudaginn 5.júní 2014

Við vildum láta þig vita að hið árlega Heilsuhlaup Krabbameinsfélags Íslands verður fimmtudaginn 05. Júní 2014. Ræst verður kl. 19:00 við hús Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Heilsuhlaup Krabbameinsfélags Íslands
Heilsuhlaup Krabbameinsfélags Íslands

Við vildum láta þig vita að hið árlega  Heilsuhlaup Krabbameinsfélags Íslands verður fimmtudaginn 05. Júní 2014.  Ræst verður kl. 19:00 við hús Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.

Forskráning  er hafin á www.hlaup.is og þar verður hægt að skrá sig til hádegis fimmtudaginn 05. júní og hjá Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð 8, til kl. 18:00 þann dag.  Upphitun hefst um kl. 18:40.

Þátttökugjald   er 1.500 krónur fyrir 15 ára og eldri og 500 krónur fyrir 14 ára og yngri. 

Vegalengdir.  Hægt er að velja um 3 km skokk eða göngu frá Skógarhlíð að Öskjuhlíð og til baka eða 10 km hlaup suður fyrir Reykjavíkurflugvöll og til baka. 

Tími verður mældur hjá öllum og úrslit birt eftir aldursflokkum: 

- 14 ára og yngri

- 15-18 ára

- 19-39 ára

- 40-49 ára

- 50-59 ára

- 60 ára og eldri

Drykkir og veitingar.  Ljúffeng súpa og brauð frá Happ. Vífilfell gefur Eðal Topp og Latabæjar Brazza. Allir hlauparar fá Hleðslu íþróttadrykk frá MS að hlaupi loknu.

Verðlaun.  Allir sem ljúka hlaupinu fá viðurkenningarpening. Verðlaun eru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki bæði í 3 km og 10 km. 

Fjölmörg glæsileg útdráttarverðlaun

Sportís gefur 4 Asics hlaupajakka

Optical Studio gefur  2 Ray Ban sólgleraugu

World Class gefur 3 gjafabréf í dekur og líkamsrækt

Regalo gefur 4 TIGI gjafapakka og Marocconoil gjafapakka

Margt Smátt gefur 3 hlaupavesti, bakpoka og töskur

Subway gefur 6 gjafabréf

Ginger gefur 10 gjafabréf

Leikhópurinn Lotta gefur 2 x gjafabréf á Hróa Hött (fyrir 4) og geisladiska

Sölufélag garðyrkjumanna gefur 6 grænmetisgjafakörfur

Beiersdorf gefur10 Eucerin gjafaöskjur

Hreysti gefur 3 armbeygju líkamsræktartæki

Salka bókaútgáfa gefur 6 bækur

Nesdekk gefur 2 gjafabréf að verðmæti 10.000 kr. inneign

Hlökkum til að sjá þig !

Sendu okkur myndir á Instagram #heilsutorg