Fara í efni

Fossvogshlaup Hleðslu

Fossvogshlaup Hleðslu

Fossvogshlaup Hleðslu verður haldið fimmtudaginn 29. ágúst við Víkina í Fossvogi. Boðið er upp á tvær vegalengdir, 5 km og 10 km og hefst hlaupið kl 19:00.

Fossvogshlaupið hefur verið haldið árlega síðustu átta ár og er eitt af fjölmennari sumarhlaupunum hvert ár. Í lok hlaups er boðið uppá veglegt kökuhlaðborð í Víkinni.

Tími og staðsetning
Hlaupið fer fram í Fossvogi fimmtudaginn 29. ágúst kl. 19:00. Hlaupið er frá Víkinni, félagsheimili Víkings, Traðarlandi 1. Vinsamlegast mætið tímanlega.

Vegalengdir
5 og 10 km með tímatöku. Vegalengdir eru löglega mældar og viðurkenndar af Frjálsíþróttasambandi Íslands. Hlaupaleiðin er hringur í Fossvogsdalnum. Einn hringur er 5 km og tveir hringir eru 10 km. Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir þá sem hlaupa 10 km og eftir hlaup fyrir alla þátttakendur. Allir hlauparar sem náð hafa 12 ára aldri eru velkomnir, jafnt byrjendur sem lengra komnir.  

Þátttökugjald og skráning
Forskráning fer fram á hlaup.is til kl. 13 fimmtudaginn 29. ágúst (hlaupdag) en skráning eftir það er í Víkinni frá kl. 16.00-18.00. Athugið að verð hækkar frá og með miðnætti miðvikudaginn 28. ágúst.

Verð í forskráningu fyrir miðnætti 28. ágúst

  • 2.000 kr,- fyrir 19 ára og eldri (f. 2000 og fyrr)
  • 1.000 kr,- fyrir 12-18 ára (f. 2001 - 2007).

Skráning á hlaupdegi (bæði á hlaup.is og á staðnum)

  • 3.000 kr,- fyrir 19 ára og eldri (f. 2000 og fyrr)
  • 1.500 kr,- fyrir 12-18 ára (f. 2001 - 2007).

Lista yfir skráða þátttakendur er á hlaup.is

Afhending hlaupagagna
Hlaupagögn verða afhent í íþróttasalnum í Víkinni á hlaupdegi, fimmtudaginn 29. ágúst frá kl. 16.00 - 18.30.

Miðvikudaginn 28. ágúst geta þátttakendur sótt hlaupagögn í Sport 24/Dansport, Sundaborg 1, á milli 16.00 og 19.00.

Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í karla - og kvennaflokki í báðum vegalengdum. Einnig verða veitt verðlaun fyrir fyrsta sæti í hverjum aldursflokki í báðum vegalengdum.   
Verðlaunaafhending fer fram í íþróttasalnum í Víkinni að hlaupi loknu. Fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna.

Aldursflokkar
Úrslit verða birt sem heildarúrslit og eftir aldursflokkum:

  • 12-18 ára
  • 19-29 ára
  • 30-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60-69 ára
  • 70 ára og eldri

Salerni og fatageymsla
Salerni og fatageymsla (vaktað) er í tengibyggingu við íþróttasalinn. Engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðrum munum og ekki heldur á hlaupaleiðinni.

Almennar upplýsingar
Að hlaupi loknu er þátttakendum boðið upp á hressingu og veitingar í íþróttasalnum í Víkinni. Þátttakendur eru hvattir til að sameinast í bíla og nota almenningssamgöngur. Þeir sem búa næst svæðinu eru beðnir um að skilja bílinn eftir heima. Bílastæði eru í Stjörnugróf, stæði austan við Víkina og við Fossvogsskóla. Athugið að bílastæði vestan við Víkina verða lokuð vegna hlaupsins frá kl. 16.00. Traðalandi verður lokað fyrir umferð frá kl. 18.45 og þar til síðasti hlaupari er komin í mark (um kl. 20.30)

Myndir frá hlaupinu verða birtar á Facebook síðu hlaupsins.  

Skipuleggjendur
Almenningsíþróttadeild Víkings , netfang: almenningur@vikingur.is.  
Hlaupastjórar: Bergný Jóna Sævarsdóttir, sími 899-6397 og Hannes A. Hannesson, sími: 669-8301.

Við erum á Facebook - Endilega deilið, fylgist með og „lækið".