Fara í efni

Göngum í skólann 2019

Göngum í skólann 2019

Göngum í skólann verður sett í Hofsstaðaskóla í Garðabæ miðvikudaginn 4. september n.k. kl. 8:30.

Dagskrá:

  • Hafdís B. Kristmundsdóttir skólastjóri býður nemendur og gesti velkomna.
  • Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ flytur stutt ávarp og stjórnar dagskrá.
  • Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra flytur stutt ávarp.
  • Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar flytur stutt ávarp.
  • Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu flytur stutt ávarp.
  • Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu flytur stutt ávarp.
  • Kór Hofsstaðaskóla ásamt nemendum syngja nokkur lög.
  • Sirkus Íslands verður með skemmtiatriði.
  • Aðstandendur verkefnisins, ráðherra, bæjarstjóri, forseti ÍSÍ, aðrir gestir, starfsfólk og nemendur Hofsstaðaskóla setja Göngum í skólann með viðeigandi hætti með því að ganga verkefnið af stað.

Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. Með þessu er ætlunin að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna en hreyfing vinnur m.a. gegn lífsstílstengdum sjúkdómum, stuðlar að streitulosun og betri sjálfsmynd. Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Þar að auki er markmiðið að draga úr umferð við skóla og stuðla að betra og hreinna lofti ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Um leið er verið að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.

Í ár tekur Ísland þátt í 13. skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi fer skráning skóla mjög vel af stað og auðvelt er fyrir skóla að bætast í hópinn. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 2. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 2. október.

Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Embætti landlæknis, ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samgöngustofa og Landssamtökin Heimili og skóli. 

Nánari upplýsingar um verkefnið gefur Hrönn Guðmundsdóttir sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands með tölvupósti hronn@isi.is eða í s: 692-9025. Vefsíða verkefnisins er  www.gongumiskolann.is.