Fara í efni

Vatnsdeigsbollur með Nutella fyllingu

Það er gaman að baka góðar bollur fyrir bolludaginn. Hér er ein útgáfa af bollum með Nutella fyllingu.
Vatnsdeigsbollur með Nutella fyllingu

Það er gaman að baka góðar bollur fyrir bolludaginn.

Hér er ein útgáfa af bollum með Nutella fyllingu.

 

Uppskrift eru um 8 - 10 bollur.

Hráefni:

100 g smjör

2 dl vatn

2 msk sykur 

110 g Kornax hveiti

3 stór egg

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C. (blástur)

Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp. (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 - 3 mínútur áður en hveitið er sett út í.

Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur.

Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman.

Setjið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum.

Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hætta á að bollurnar falli.  

Nutella fylling:

4 dl rjómi

1 banani

3 msk. Nutella

Aðferð:

Þeytið rjóma.

Maukið banana og Nutella saman með töfrasprota eða stappið vel saman með gaffli.

Blandið bananablöndunna varlega saman við rjómann með sleif.

 

Uppskrift frá Evu Laufey Kjaran