Fara í efni

Súkkulaði-chilli smákökur

Smá suðrænt og seiðandi fyrir jólin
Höfundur er Guðrún Þórðardóttir
Höfundur er Guðrún Þórðardóttir

Smá suðrænt og seiðandi fyrir jólin

Þessar smákökur draga það besta fram í súkkulaðinu.  Sirius Konsum suðusúkkulaði nær nýjum hæðum þar sem chilli-ið rífur aðeins í bragðlaukana með súkkulaði-chilli bragðinu. Hér er notast við ½ teskeið af chilli en þeir sem þora geta farið í ¾ hluta úr teskeið. Hér er hollustan í fyrirrúmi, smjör, sjávarsalt, hrásykur, 56% sírius suðusúkkulaði, úrvals KORNAX hveiti og chilli. Chilli er bráðholt og ekki skemmir að það er grennandi J Þessar kökur myndu sóma sér vel með Kampavíni í saumaklúbbnum.

125 gr. KORNAX hveiti

100 gr. Sirius Konsum suðusúkkulaði 56% (saxað)

125 gr. haframjöl

125 gr. smjör

125 gr. hrásykur

4 msk. kakó

2 stk. egg

1 tsk. vanilludropar

½ tsk. matarsódi

½ tsk. sjávarsalt

½ tsk. chilliflögur (þurrkaðar chilliflögur saxaðar smærra)

Hrásykur, smjör og egg hrærð vel saman, vanilludropum bætt við. Þurrefnum blandað saman í skál og smátt söxuðum chilliflögunum bætt við. Þurrefnin sett út í hræruna og blandað saman við, í lokin er Sirius Konsum suðusúkkulaði blandað við.

Sett með teskeið á plötu og bakað í 8 mínútur við 170˚C

Verði ykkur að góðu !!

Höfundur er Guðrún Þórðardóttir sem tók þátt í smákökusamkeppni KORNAX og Gestgjafans.