Fara í efni

RAW Kókós „Bliss“ kúlur

Þessar eru alger draumur og ekki mikið tilstand að búa þær til. Þær eru eru stútfullar að „góðri“ fitu og trefjaríkar. Krakkarnir eiga eftir að elska þessar Kókós Bliss kúlur og sniðugt að nota sem laugardags nammi!
RAW Kókós „Bliss“ kúlur

Þessar eru alger draumur og ekki mikið tilstand að búa þær til. Þær eru eru stútfullar að „góðri“ fitu og trefjaríkar. 

Krakkarnir eiga eftir að elska þessar Kókós Bliss kúlur og sniðugt að nota sem laugardags nammi!  

 

Innihald:

  • 2 bollar möndlur (Almonds)
  • 2 ½ bolli kókósflögur
  • 1 sítróna (safinn og börkurinn)
  • 3 msk af hunangi
  • 1 tsk vanilla
  • 1 tsk sjávar salt

 

Aðferð:

Setjið allt í matvinnsluvél, kreistu safann úr sítrónunni, rífðu börkinn niður og settu með í vélina. Allt nema einn bolla af kókósflögum.  Blandið vel saman.  Notið teskeið til að búa til litlar kúlur á milli handana.  Að endingu veltið kókós kúlunum upp úr restinni af flögunum.  Kælist um í eina klukkustund í ísskápnum áður en þetta er borið fram.

 

 

Tengt efni: