Fara í efni

Himnesk trönuberjahrákaka - Hamingja í hverjum bita

Þessi er geggjuð.
Dásamlegt
Dásamlegt

Himnesk trönuberjahrákaka frá FoodandGood.is 

 

Botninn:

1 1/2 bolli trönuber
1 bolli döðlur
1/2 bolli kakó
1/2 bolli graskersfræ
1/2 bolli hampfræ
3 msk kókosolía
3 - 4 msk hlynsýróp

Leiðbeiningar:

Leggið trönuberin og döðlurnar í bleyti í um 60 mín. Setjið hampfræin og graskersfræin í matvinnsluvél og malið. Bætið kakóinu útí og látið blandast vel saman. Skerið döðlurnar í bita og setjið útí, ásamt trönuberjunum. Bætið hlynsýrópinu og kókosolíunni úti og blandið öllu vel saman. Ef vantar meiri vöka bætið örlítið af döðlusoðinu útí. Sett í form og í frysti.

Súkkulaðikrem:

2 - 3 msk. kakó
3 msk. kókosolía
2 - 3 msk. hlynsýróp

Blandið öllu saman og hrærið í stutta stund og smyrjið ofan á kökuna. Geymið í frysti í um klukkustund áður en kakan er borin fram.

Njótið dagsins!

Uppskrift frá FoodandGood.is