Fara í efni

Skólahristingur

Þessi drykkur er tilvalin morgundrykkur, í honum er ýmislegt sem er gott fyrir góða heilastarfsemi svo hann er sérstaklega góður fyrir skólakrakkana en auðvitað alla hina líka.
Þessi drykkur er tilvalin morgundrykkur
Þessi drykkur er tilvalin morgundrykkur

Skólinn er byrjaður og allt að komast í rútínu.  Ég sakna sumarsins en samt er eitthvað svo ágætt þegar allt fer aftur í reglu og kemst skipulag á allt. Eitt það dásamlegasta við haustið eru berin, blessuð berin, ég byrja bara að brosa við tilhugsunina um ber og berjamó. Því miður er ekki eins mikil berjaspretta eins og hefur oft verið en það eru þó komnir 20-25 litrar inn í frysti sem verður svo deilt samviskusamlega niður svo það endist fjölskyldunni yfir veturinn.

Ég vona innilega að þið hafið haft tök á því að tína eitthvað af berjum sem bíða núna í fyrstinum eftir drykkjum vetrarins.

Þessi drykkur er tilvalin morgundrykkur, í honum er ýmislegt sem er gott fyrir góða heilastarfsemi svo hann er sérstaklega góður fyrir skólakrakkana en auðvitað alla hina líka.

Hráefni:

(2 stórir drykkir eða 4 litlir)

  • 2- 3 dl Bláber (helst frosin svo drykkurinn sé kaldur)
  • 1 lúka Möndlur (búnar að liggja í bleyti yfir nótt)
  • Nokkrar Valhnetur
  • 1 Pera eða annar sætur ávöxtur t.d. banani eða epli
  • 1 lítil eða hálft stórt avakadó
  • 4-5 dl Vatn (má líka setja kókosmjólk, verður sætara og meiri fylling)
  • 2 döðlur til að sæta eða 3-5 dropar af stevíu
  • 2 msk hveitikím eða möluð hörfræ

Aðferð:

Allt sett í blandara og blandað vel saman, bætið hveitikíminu/hörfræjunum í alveg undir lokin.

Verði ykkur að góðu

HEILSUMAMMAN  - sjá meira á www.heilsumamman.com 

HOLLT OG GOTT FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA