Fara í efni

Salat úr súperfæði

Þetta dásamlega góða salat er hlaðið af súperfæði og það fyllir magann og hleður líkamann af súper næringu.
Takið nú allt hráefnið og setjið í stóra skál.
Takið nú allt hráefnið og setjið í stóra skál.

Þetta dásamlega góða salat er hlaðið af súperfæði og það fyllir magann og hleður líkamann af súper næringu.

En hvaða kosti hefur hráefnið sem er í þessu salati?

Rauðrófur: Þær eru frábærar fyrir hjartað og blóðið. Þær virka eins og hreinsun fyrir blóðið, einnig vinna þær vel með lifrinni, eru æðislegar fyrir meltinguna og hormónana. Það er líka sagt að rauðrófur séu góðar við einkennum breytingaskeiðs.

Sætar kartöflur: Þær eru góðar fyrir nýrun, eru ríkar af A-vítamíni, þær eru frábærar fyrir konur með barn á brjósti og þær draga úr bólgum.

Kale: Er gott fyrir magann og meltinguna, ríkt af steinefnum eins og kalki, járni og A-vítamíni.

Quinoa: Afar prótein ríkt og styrkir líkamann. Gott fyrir nýrun og inniheldur meira að kalki en mjólk. Er fullt af járni, phosphorous og B-vítamínum ásamt E-vítamíni.

Avocado: Er afar gott fyrir heilbrigða lifrastarfsemi, lungun, inniheldur lecithin, er auðmelt og ríkt af kopar sem að styrkir rauðu blóðkornin. Er mjög gott fyrir húðina og hefur verið notað til að meðhöndla magasár.

Sætar grænar baunir: Eru góðar fyrir miltað og magann. Stuðla að góðri melting og bjarga þeim sem að þjást af harðlífi.

Furuhnetur: Þær eru góðar fyrir lungun, einnig við þurrum hósta, hægðartregðu og fleiru. Þær eru hlaðnar af E-vítamíni og nauðsynlegum fitusýrum.

Graskersfræ: Þau eru afar rík af zinki og omega 3 fitu sýrum. Þau styrkja við heilbrigði þvagrásar og það er hægt að nota þau við bílveiki, flugveiki, ógleði og fleiru.

Arugula: Er ríkt af A, C og K-vítamínum.

Þá vitum við það, þetta salat er greinilega súper salat.

Hráefnið:

3 sætar kartöflur, skrælaðar og skornar í kubba

3 stórar rauðrófur, skrælaðar og skornar í kubba

1 haus af kale, rifinn í litla bita

2 fullar lúkur af arugula

1 avokado, skorið í bita

½ poki af frosnum sætum baunum – láta þær þiðna

2 bollar af elduðu quiona

2 msk af furuhnetum

2 msk af graskersfræjum

Ólífuolía

Sjávarsalt og ferskur svartur pipar

Quinoa – setjið 4 bolla af vatni í pott og látið suðuna koma upp, bætið quinoa við ásamt dassi af sjávarsalti. Látið eldast undir loki þar til allt vatnið er gufað upp. Þetta tekur um 15 mínútur. Takið af hellunni og geymið í pottinum undir loki.

Ristaðar rauðrófur og sætar kartöflur – setjið grænmetið í poka sem hægt er að renna fyrir (zip lock) bætið í pokann smá af ólífuolíunni. Lokið pokanum og hristið vel, passa að olían nái að hylja allt grænmetið.

Setið grænmetið svo í mót sem má fara í ofn og látið ristast í 35 til 40 mínútur. Muna að snúa grænmetinu við þegar helmingur af tímanum er liðinn. Látið eldast þangað til grænmetið er eldað í gegn og orðið létt brúnt.

Takið nú allt hráefnið og setjið í stóra skál. Blandið vel saman og kryddið með svörtum ferskum pipar. Einnig er afar gott að nota vinaigrette, bara þína uppáhalds, í þessari uppskrift er talað um Garlic Expressions.

Og hérna eru með salat sem er stút fullt af næringu og himneskt á bragðið.

Njótið~