Fara í efni

Rækju, Mangó og Avacado salat

Og ef maður bara aðeins vandar sig með sjálfan sig...þá getur maður verið í 5 stjörnu fæði hjá sjálfum sér Nammi hvað þetta var gott :)
Sjúklega gott salat.
Sjúklega gott salat.

Hádegið 

"Færðu aldrei leið á matnum .....ég meina lendurðu ekki í því að festast í því sama ".Þessa spurningu heyri ég ansi oft. 

Svarið er, glætan ég er eiginlega voðalega sjaldan með sama matinn.
Það er svo mikið til af flottum hollum fallegum girnilegum mat....úllala.

Og ef maður bara aðeins vandar sig með sjálfan sig...þá getur maður verið í 5 stjörnu fæði hjá sjálfum sér. 
Nammi hvað þetta var gott :)

Salat.

Iceberg
Rucola
Gúrka
Vorlaukur
Tómatur
Paprika
Mangó
Avacado
Rækjur
Camenbert
Sítrónu safi
Balsamik gljái frá Sollu
Nýmulin blandaður pipar

Skera Avacado og mango .
Blanda saman í skál með rækjum og kreista vel af sítrónu safa yifr.
Síðan bara dunda sér að gera eins girnilegt salat og hægt er.

Og bara njóta.