Fara í efni

Kókósmuffins með bláberjum

Já, nú eiga eftir að detta inn nokkrar ljúffengar uppskriftir sem ég er búin að vera safna í sarpinn síðustu vikurnar og það er til hæfis að byrja á kókósmuffins með aðalbláberjum.
Kókósmuffins með bláberjum
Kókósmuffins með bláberjum

Já, nú eiga eftir að detta inn nokkrar ljúffengar uppskriftir sem ég er búin að vera safna í sarpinn síðustu vikurnar og það er til hæfis að byrja á kókósmuffins með aðalbláberjum.

Ég er nú ekkert að missa mig í kökubaksturstilraunum en þar sem að litla dýrið mitt var farið að sýna viðbrögð við kakói (rauð útbrot í kringum munninn) þá fannst mér tilvalið að reyna að breyta smá skúffukökuuppskriftinni minni.

Innihaldsefni:

  • 2 bollar dove’s farm (í bláu pokunum)
  • 1 bolli hrásykur
  • 1.5 bollar kókósmjöl
  • 1 bolli kókósmjólk í fernu (koko eða coconut dream)
  • 1 dós kókósmjólk
  • 100 ml brætt smjörlíki
  • slurkur af vanilludropum (ekki íslensku – þessum frá now)
  • 1 msk husk
  • 1-2 bollar af aðalbláberjum – eða bara því sem ykkur dettur í hug að mixa með .

Aðferð:

Byrja á því að hræra saman allt þetta blauta og brætt smjörlíki. Bæti þvínæst útí þurrefnum. Hræra vel í hrærivélinni eða þar til allt er vel blandað saman. Bláberjum bætt útí síðast og bara hrært útí með sleif.

Svo er bara að skella í form og inn í heitan ofn (á 180-200° blæstri fer svolítið eftir ofni) og baka í svona circa 20-30 mín. Mæli með því að stinga í kökurnar áður en þær eru teknar út því ég er svolítið að lenda í því að þær séu ekki nógu bakaðar hjá mér.

Kæla svo í glugganum í smá stund eða eins lengi og þolinmæðin leyfir!

Volia, gúmmelaði girnilegar kókósmöffins með aðalbláberjum.

Þessi uppskrift er:  Eggjalaus, Glútenlaus, Hnetulaus og HveitilausMjólkurlausSesamlaus og Sojalaus

Uppskrift frá: palinurnar.wordpress.com